Aðalfundur MBKÍ 2022 verður haldinn 15. nóvember
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Aðalfundur Mercedes-Benz klúbbs Íslands (MBKÍ) verður haldinn þann 15. nóv. 2022.
Aðalfundurinn verður haldinn í félagsheimili Fornbílaklúbbs Íslands að Ögurhvarfi 2 í Kópavogi (sjá á Já: https://ja.is/?q=%C3%B6gurhvarf%202). Félagsheimilið er við hliðina á ísbúðinni Skalla.
Aðalfundurinn er einnig auglýstur á spallþræði klúbbsins (www.mbclub.is/spjall) sem og á Facebook síðu klúbbsins www.facebook.com/groups/mbclubis/. Beinn hlekkur í atburðinn á Facebook er að finna hér: https://fb.me/e/2aBvUiSkY
Dagskrá:
• Kosning fundarstjóra og fundarritara
• Skýrsla stjórnar
• Reikningar lagðir fram
• Breytingar á lögum félagsins
• Kosning í stjórn
• Önnur mál
Eingöngu þeir sem eru félagsmenn, sem hafa greitt félagsgjaldið eigi síðar en þrem vikum fyrir aðalfund, geta setið fundinn og tekið þátt í atkvæðagreiðslu.
Þeir sem hafa áhuga á því að þátt í stjórn eða nefndum á vegum MBKÍ vinsamlegast sendið upplýsingar þar að lútandi í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir kl. 00:00. þann 14. nóvember 2022.
Lög klúbbsins er að finna á: https://mbclub.is/spjallid/11/24040 .