Innganga í Mercedes-Benz klúbb Íslands
Félagsgjald á ári er 5000 kr. Sé hinsvegar gengið til liðs við félagið á tímabilinu frá 1. september til 1. desember skal greiða 6000 kr. til að öðlast aðild að félaginu í rúmt ár, en ekki bara til næstu áramóta sem á eftir koma. Þeir sem því greiða 6000 krónur á umræddu tímabili fá ekki innheimtubeiðni í heimabankanum örfáum vikum síðar |
|
||
Til að ganga í félagið er fyrsta skrefið að leggja þessar 5000 eða 6000 krónur (sjá útskýringu hér ofar) inn á reikning félagsins sem er: Reikningur: 0535-26-2710 Áríðandi er að í tilvísun komi fram kennitala hins nýja félaga og ekkert annað. |
|||
Við svo búið skal sendur tölvupóstur til gjaldkera (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) með upplýsingum um: Ath. að heimilisfang, netfang og farsímanúmer þurfum við að skrá til þess að geta sent félagsmönnum bréfpóst og Classic Magazine, fréttabréf klúbbsins í tölvupósti og mögulega að geta sent skilaboð um samkomu með SMS. Netfang gjaldkera er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
|||
Félagsskírteinið mun síðan verða sent frá Mercedes-Benz Club Management (MBCM) í Þýskalandi eins fljótt og auðið er. Þeir sem eitthverra hluta vegna þurfa staðfestingu á félagsaðild áður en skírteinið er sent út til félaga er bent á að taka það fram í tölvupósti til félagsins. Tekið skal fram að við sendum ekki innheimtubeiðni og að enginn sem ekki hefur sent greiðslu verður skráður í félagið. Einnig skal tekið fram af gefnu tilefni að það að skrá sig inn á samfélagsmiðla félagsins (s.s. Facebook) eða spjallvef (mbclub.is/spjall) jafngildir ekki félagsaðild.
|
|||
Hvaða hagsmunir eru af því að vera félagi í Mercedes-Benz klúbbi Íslands? |