Innskráning með samfélagsmiðli

Kvartmílukvöld 2011

mauro-calo-small

Kvartmílukvöld 15. júlí

Föstudaginn 15. júlí kl. 19:00 verður MBKÍ með kvartmílukvöld í samstarfi við Kvartmíluklúbbinn.

Allir MERCEDES-BENZ bílar eru velkomnir í boði Mercedes-Benz klúbbsins (MBKÍ), það kostar ekkert inn á svæðið og brautin er ekin án gjalds. Það verða bara Benzar leyfðir á brautina þetta kvöld, fjölmennum og tökum góða spretti á brautinni.

Kvartmílukvöldið er haldið í samstarfi við Kvartmíluklúbbinn.
Það er skilyrði að þeir sem keyra brautina verða að vera með hjálm!
Kvartmíluklúbburinn setur ekki skilyrði af sinni hálfu varðandi tryggingarviðauka en MBKÍ mælir með því við félagsmenn, og aðra sem áhuga hafa að taka þátt, að þeir athugi það hjá sínum tryggingarfélögum hvort viðauka sé krafist.

Sjá nánar á:

http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=22&t=18812

 og

http://www.facebook.com/event.php?eid=223971780969210