Innskráning með samfélagsmiðli

MBclub.is - Að gerast félagi

Innganga í Mercedes-Benz klúbb Íslands

Félagsgjald á ári er 5000 kr. Sé hinsvegar gengið til liðs við félagið á tímabilinu frá 1. september til 1. desember skal greiða 6000 kr. til að öðlast aðild að félaginu í rúmt ár, en ekki bara til næstu áramóta sem á eftir koma. Þeir sem því greiða 6000 krónur á umræddu tímabili fá ekki innheimtubeiðni í heimabankanum örfáum vikum síðar

 

 
mbki_skirteini

Til að ganga í félagið er fyrsta skrefið að leggja þessar 5000 eða 6000 krónur (sjá útskýringu hér ofar) inn á reikning félagsins sem er:

Reikningur: 0535-26-2710
Kennitala: 4503042710.

Áríðandi er að í tilvísun komi fram kennitala hins nýja félaga og ekkert annað.

 
 

Við svo búið skal sendur tölvupóstur til gjaldkera (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) með upplýsingum* um:

Nafn
Kennitölu
Heimili
Póstnúmer
Netfang
Farsímanúmer

Netfang gjaldkera er This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

 * Upplýsingar um persónuvernd:

Heimilisfang, netfang og farsímanúmer þurfum við að skrá til þess að geta sent félagsmönnum bréfpóst, Classic Magazine tímaritið, fréttabréf klúbbsins í tölvupósti og mögulega að geta sent skilaboð um samkomu með SMS.
Félagaskrá klúbbsins er hýst hjá Mercedes-Benz AG í Þýskalandi í samræmi við vinnslusamning þ.a.l. á milli MBKÍ og Mercedes-Benz AG.
Ofangreind gögn, sem félagið safnar um félagsmenn, verða ekki nýtt í öðrum tilgangi né afhent til þriðja aðila heldur aðeins til úrvinnslu hjá Mercedes-Benz klúbbi Íslands og Mercedes-Benz Heritage GmbH (dótturfélag Mercedes-Benz AG) í Þýskalandi í tengslum við þjónustu við klúbbinn.
Óski félagsmaður eftir því að hætta í klúbbnum þá er hann merktur sem slíkur í gagnagrunni en ofangreindum gögnum ekki eytt nema þess sé óskað sérstaklega með tölvupósti þ.a.l. til gjaldkera klúbbsins í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

 

 
clubcard

Félagsskírteini (plastkort - sjá mynd hér til hiðar) eru send til klúbbsins frá Mercedes-Benz og áframsend í bréfpósti til félagsmanna þegar þau hafa borist.
Prentun getur tekið nokkur tíma en von er á því að félagsskírteini verði einnig á rafrænu formi fyrir snjallsíma í árslok 2023.
Þeir sem einhverra hluta vegna þurfa staðfestingu á félagsaðild áður en skírteinið er sent út til félaga er bent á að taka það fram í tölvupósti til félagsins (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.).

Einu sinni á ári eru félagssgjöld innheimt í gegnum heimabanka en um er að ræða valgreiðslur. Sá sem ekki hefur greitt valgreiðsluna í heimabankanum eða millifært félagsgjöld inn á heimabanka félagsins verður ekki skráður í félagið.

Einnig skal tekið fram af gefnu tilefni að það að skrá sig inn á samfélagsmiðla félagsins (s.s. Facebook, Instagram) eða spjallvef (mbclub.is/spjall) jafngildir ekki félagsaðild.