Kannast fleiri við að ljós detti út á W210? Önnur bakkperan og bremsuljósið hættu að virka (með tilheyrandi villumeldingu þegar ég starta bílnum) og ekkert lagaðist þó ég skipti um perur og socketið sem þær sitja í.
Hér er lítið að gerast. Eftir vægast sagt hræðilega þjónustu hjá Bíladoktornum fór ég með bílinn á Bifreiðaverkstæði Björns P þar sem var gert við balance stangar vesenið. Núna þarf að finna út úr smávægilegum bensínleka (gat á röri) og þá er "bara" eftir að laga ryðið.
Kæru félagar, nú leita ég á náðir ykkar um þekkingu. Þannig er mál með vexti að topplúgan í bílnum sat föst lokuð. Ég heyrði mótorinn berjast við að reyna að opna hana en hún bifaðist ekki. Við tættum allt í sundur og komumst að því að vírinn var kominn í kleinu við lúguna sjálfa. við réttum úr honu...
Þegar bílnum er núna treystandi til keyrslu var auðvitað farið beint úr bænum. Langaði að deila þessari þrælskemmtilegu mynd sem mér finnst sýna ,,virðuleikann" sem mér finnst fylgja þessum bílum.
Þetta mjakast allt saman. Nýir demparar komnir í að framan http://i11.photobucket.com/albums/a180/brapple/20130627_201252_zps06a218b9.jpg og mér finnst ég hreinlega sjá mun á því hvernig bíllinn stendur http://i11.photobucket.com/albums/a180/brapple/20130628_035206_zpsa15f6e2b.jpg fyrir utan að það ...
Haha já það er mismunandi bjartsýnin hjá mönnum
En vinnan heldur áfram og núna er búið að fjárfesta í dempurum. Það var auðvitað hægt að treysta Herr Doktor til að eiga þá á lager og á fína verðinu.
Þeim verður hent undir í kvöld og þá er allavega hægt að keyra bílinn með góðri samvisku.