nú styttist í afmælissýningu MBKÍ sem haldin verður um næstu mánaðarmót. Nákvæm tíma- og staðsetning verður kynnt síðar.
Stjórn klúbbsins óskar eftir hugmyndum um bíla til að sýna á þessari sýningu sem verður öllum opin og auglýst sérstaklega þegar nær dregur.
Þegar er búið að bóka fjölda bíla en þó svo að "við höldum að við vitum allt um alla Benza á Íslandi" þá er það nú ekki svo
Það eru örugglega mjög áhugaverðir Benzar til á landinu sem ekki hafa áður sést á sýningum eða samkomum á vegum MBKÍ og væri því gaman að geta fengið þá á sýninguna.
Ef þú lesandi góður veist um einhvern bíl sem ætti heima á svona sýningu, eða átt slíkann, þá endilega hafðu samband við okkur í stjórn klúbbsins.
Best er að senda okkur tölvupóst á netfangið vefstjorn@mbclub.is eða með því að senda okkur einkapóst hér á spjallinu.