Síða 1 af 1

Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 16 Ágú 2013, 15:25
frá Stjórn MBKÍ
Ágætu lesendur,

nú styttist í afmælissýningu MBKÍ sem haldin verður um næstu mánaðarmót. Nákvæm tíma- og staðsetning verður kynnt síðar.

Stjórn klúbbsins óskar eftir hugmyndum um bíla til að sýna á þessari sýningu sem verður öllum opin og auglýst sérstaklega þegar nær dregur.
Þegar er búið að bóka fjölda bíla en þó svo að "við höldum að við vitum allt um alla Benza á Íslandi" þá er það nú ekki svo :lol:.
Það eru örugglega mjög áhugaverðir Benzar til á landinu sem ekki hafa áður sést á sýningum eða samkomum á vegum MBKÍ og væri því gaman að geta fengið þá á sýninguna.

Ef þú lesandi góður veist um einhvern bíl sem ætti heima á svona sýningu, eða átt slíkann, þá endilega hafðu samband við okkur í stjórn klúbbsins.

Best er að senda okkur tölvupóst á netfangið vefstjorn@mbclub.is eða með því að senda okkur einkapóst hér á spjallinu.

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 20 Ágú 2013, 18:08
frá viktorE300
ég a einn w124 300E 4matic sem var a Bílasyninunni i boganuum á Bíladögum ef þið viljið fá hann

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 22 Ágú 2013, 23:48
frá sveinn
Hér eru myndir frá síðustu sýningu klúbbsins, og held ég bara þeirri fyrstu líka :)

Kannski gefur það einhverjar hugmyndir...

http://www.mbclub.is/spjall/viewtopic.p ... 66&#p80466

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 25 Ágú 2013, 16:23
frá Bragi1
Ég myndi bjóða minn fram en það tæki marga daga að sópa upp ryðið og þrífa olíuna af gólfinu :lol:

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 26 Ágú 2013, 22:29
frá Benni
Bragi1 skrifaði:Ég myndi bjóða minn fram en það tæki marga daga að sópa upp ryðið og þrífa olíuna af gólfinu :lol:
:lol:

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 27 Ágú 2013, 17:49
frá sveinn
Þennan 280 bíl hefði verið gaman að fá á sýninguna, en það er nú sennilega of seint. Hann er á U númeri (Suður-Múlasýsla), og þetta er líklega besti W114/W115 bíllinn á landinu í dag. Lítið ekinn, upprunalegt lakk og mjög fallegur að innan.

Set þessar myndir hér inn svona frekar til að sýna þennan bíl fyrir þá sem ekki vissu um hann. Ég vissi t.d. ekkert af þessum bíl fyrr en í sumar. Myndirnar eru teknar á landsmóti Fornbílaklúbbsins í sumar;

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 27 Ágú 2013, 20:28
frá gmg
Já þessi U-1 er rosalegur, 2 eigendur faðir og sonurinn tekinn við honum, bíllinn er á Reyðarfirði.

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 27 Ágú 2013, 21:02
frá Benni
Já sæll, þetta er ótrúlega flott eintak!!

Re: Afmælissýning MBKÍ - hugmyndir um bíla til að sýna

Innsent: 30 Ágú 2013, 21:19
frá HAMAR
Þessi myndi sóma sér vel á Benz sýningu: