230CE C123 verkefni

#1
Nýjasta verkefnið er einn af draumabílunum

1984 árgerðin af 230CE W123.
Hann hefur séð betri daga en ég hugsa að þegar búið er að fara í (talsverða) boddývinnu er hann orðinn góður. Hann er lítið ekinn fyrir Benz og það finnst á mótor og skiptingu sem eru eins og ný.


Hér var komið ryð á hinum fræga W123 stað frammi í húddi og vatn lekið inn í bílinn þónokkurn tíma. Enda motturnar vel rakar og toppurinn orðinn myglaður Þarna er svo gólfið afturí þar sem vatnið hafði greinlega alltaf safnast og lekið út með tappanum. Þá var ekki annað að gera en að rífa upp tuskuna, þrífa toppinn og koma mottunum í þrif. Jú og loka gatinu auðvitað.

Það verður ekki jafn auðvelt að loka þessum grunar mig
Annars er mest áríðandi að fá nýjan dempara farþegameginn að framann þar sem gamli hafði brotnað úr og finna út úr banki sem er í honum bílstjórameginn. Spurningin er bara hvert er best að fara.

En þangað til farið er í það og alvöru boddývinnu var farið í litla dútlið. Miðstöðin var t.d föst svona svo það þurfti að rífa í sundur og skoða. Límböndin eru að halda við viðinn á meðan límið þornar. Ástæðan var að vírinn sem liggur úr miðstöðinni sjálfri þurfti smá smurningu. Grunar að topplúgan þurfi svipaða meðferð. Mótorinn snýst en lúgan situr föst.

Í hanskahólfinu leyndist smurbækur nánast frá upphafi, heill hellingur af nótum og flest ef ekki öll skoðunarvottorðin.

Og sjúkrakassinn virðist aldrei hafa verið notaður Það er ljóst að mikil vinna er framundan og ég ætla að leyfa ykkur að fylgjast með :)
Seinast breytt af Bragi1 þann 24 Jún 2013, 18:52, breytt 1 sinni alls.


Bragi Gunnlaugsson
300E '90

Re: 230CE C123 verkefni

#5
Þessi bíll er alveg á mörkunum að vera þess virði að bjarga og verður gífurlega dýrt að gera hann eins og bíl. Það er merkilegt að skoða sögu þessa bíls! Það hefur greinilega verið mjög lítið gert annað en að keyra, síðan 1990 hefur það aðeins gerst þrisvar sinnum að hann hafi farið athugasemdalaust í gegnum skoðun í fyrstu tilraun.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: 230CE C123 verkefni

#6
Þröstur skrifaði:Þessi bíll er alveg á mörkunum að vera þess virði að bjarga og verður gífurlega dýrt að gera hann eins og bíl. Það er merkilegt að skoða sögu þessa bíls! Það hefur greinilega verið mjög lítið gert annað en að keyra, síðan 1990 hefur það aðeins gerst þrisvar sinnum að hann hafi farið athugasemdalaust í gegnum skoðun í fyrstu tilraun.
En gott að bjarga bílnum samt :tumbsup2:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: 230CE C123 verkefni

#9
Haha já það er mismunandi bjartsýnin hjá mönnum :lol:
En vinnan heldur áfram og núna er búið að fjárfesta í dempurum. Það var auðvitað hægt að treysta Herr Doktor til að eiga þá á lager og á fína verðinu.
Þeim verður hent undir í kvöld og þá er allavega hægt að keyra bílinn með góðri samvisku.
Bragi Gunnlaugsson
300E '90

Re: 230CE C123 verkefni

#10
Þetta mjakast allt saman. Nýir demparar komnir í að framan og mér finnst ég hreinlega sjá mun á því hvernig bíllinn stendur
fyrir utan að það er náttúrulega hægt að keyra bílinn.

Svo var rennt í skoðun í dag áður en fresturinn rann út
sett út á tvo atriði: ójafnan bremsukraft og svo þetta hér
Gúmmíið hefur vantað á stöngina í þónokkurn tíma og hún búin að slá duglega frá sér. Þá þýðir ekkert annað en að laga og fá fulla skoðun á fákinn.
Bragi Gunnlaugsson
300E '90