Þannig er mál með vexti að topplúgan í bílnum sat föst lokuð. Ég heyrði mótorinn berjast við að reyna að opna hana en hún bifaðist ekki. Við tættum allt í sundur og komumst að því að vírinn var kominn í kleinu við lúguna sjálfa. við réttum úr honum og keyrðum handvirkt til baka inn í rörið. Ég gluðaði feiti í allt sem mér datt í hug og prufaði að opna. Jú viti menn hún opnaðist. Nema hvað að núna situr hún að sjálfsögðu pikkföst opin!
Við tókum loftklæðninguna úr, skrúfuðum ,,kassann" lausuann sem topplúgan situr í og erum búnir að taka mótorinn af. Einnig er lúgan sjálf komin úr. Ég hefði haldið að maður gæti togað vírinn til baka handvirkt en allt er pikkfast. Eru einhverjir staðir sem eru þekktir fyrir að festast? Ég get ekki betur séð en þetta sé á samskeytunum við lúguna sjálfa.