Það var farið að fara í taugarnar á mér að sjá hvað hann hékk fram á nebbann. Fyrri eigandi lét setja nýja gorma í bílinn að aftan og hann var nokkuð hár þar, en nokkuð siginn að framan.
Þetta var smá hausverkur, ekki fengust ákveðin svör frá hvorki Öskju né AP hvaða gormar væru í bílnum, sem svo þyrfti að panta og ekki að vita í hvaða hæð hann myndi lenda.
Ég sá fram á að þurfa að kippa þessu úr og setja í oftar en einu sinni, svo ég splæsti í almennilega gormaklemmu. Það verður að segjast að þetta er í fyrsta sinn þar sem ég spenni saman framgorma í botn án þess að vera með lífið í lúkunum, bókstaflega. Ótrúlega þægilegt verkfæri.
Uppgefið fyrir W107 W116 W123 W124 W126 W129 W140 W170 W201 W202 W208 og W210 samkvæmt seljanda.

Ég keypti ný gormagúmí hjá AP á litlar 1.000 krónur parið sem voru 5mm hærri en það sem var í. Ég hafði annars mælt út að ég myndi eiginlega vilja sjá 8mm hækkun á gormi en ætlaði að sjá hvernig þetta kæmi út í fyrstu umferð. Það kom svo á daginn þegar ég kippti gormunum úr, að gúmíin sem voru í voru örlítið samanþjöppuð. 2-3mm eða svo, gormarnir síga sem sé ekki bara, gúmíin gefa aðeins eftir líka.
Útkoman var eignilega 'spot on'. Það er rétt aðeins nokkrir millimetrar hærra undir tjakkfestingu að aftan en að framan og ég harðánægður með útkomuna. Alltaf gaman þegar manni sjálfum finnst að eigin verk heppnist vel
