Re: MB 200 W123 1981

#12
Ég er laus við allan áhuga um lækkun, bara minn smekkur. Það er ekki laust við að hann hafi jafnvel skánað í akstri, núna étur hann hraðahindranir ekki síður en annar ónefndur bíll sem ég á með tölvustýrðri loftpúðafjöðrun. Slaglangur og mjúkur.

Settið keypti ég á ebay, $170 með svolítið vel í lagt $75 í sendingarkostnað. Borgaði svo tæp 8 þúsund í gjöld þegar ég tók við þessu hjá póstinum um viku seinna. 37 þúsund í allt. Þú færð fleiri en einn möguleika upp strax ef þú leitar eftir 'Strut Coil Spring Compressor For Mercedes Benz'.

Þetta dót kemur frá Kína og það eru margir að selja þetta.

Mér hefur svo sem dottið í hug að það væri hægt að leigja settið Benz mönnum gegn vægu gjaldi. Ég er ekki kominn með neina niðurstöðu í það þó. Ætla samt ekki að selja þetta strax, á eftir að taka einn bíl sem bíður smá breytinga.

Það er umtalað hversu eytraðir þessir Benz framgormar eru, en ég held að þeir séu mun skárri en framgormar úr gömlum amerískum innan úr klafasetti með svera big-block í húddinu. Þá leið mér eins og ég hefði óvænt fengið tundurdufl úr seinni heimstyrjöld í fangið og ætti að burðast með í gegnum einhvern þrautarkóng á sinn stað. Þá þarf að losa spindilkúlur og gera, þarna er gorminum bara skrúfað saman og hann dettur úr!

Ég á tvær aðrar gerðir af gormaklemmum, svona par af klóm utan á gorminn og eina kló sem er inni í gorminum. Miðað við notkun á þeim er þetta barnaleikur. Maður bara kemur þessu fyrir og skrúfar saman, tekur úr áhyggjulaust.
Erlingur Bjarnason

Re: MB 200 W123 1981

#18
gmg skrifaði:Flott að sjá hann svona jafn háan, ég myndi samt lækka hann aðeins :wink:

Þar er ég sammála þér, glæsilegur bíll samt sem áður.
Ásgeir Örn Arnarson
S: 8460963

M.Benz E420 '93 sportline "AMG"
M.Benz 190e 3.0 twinturbo '89 bsk sportline
M.Benz 190e 2.0 '91 - seldur
M.Benz 300ce '88 - seldur
M.Benz 280se '83 - seldur
M.Benz 230e '83 - seldur

Re: MB 200 W123 1981

#20
Benzari skrifaði:
Benni skrifaði:
Benzari skrifaði:Þá er "like" fítusinn vel falinn ef svo er.
Hann er bara efst í fyrsta innlegginu :wink:
Þá þarf ég að uppfæra vafrann, enginn "LIKE" hnappur hér. :wink:
Kannski ekki beint Like takki en það er takki til að deila á fésbókinni í fyrsta innleggi á síðu 1.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.
cron