MB 200 W123 1981
Innsent: 05 Ágú 2013, 23:02
Ég keypti minn fyrsta Benz fyrir stuttu. Það er 1981 Benz 200 sem var keyrður tæpa 38 þúsund kilómetra. 4 gíra beinskiptur og án allra aukahluta, en þó með topplúgu.
Hann er í ágætu standi, eitthvað var þó hægt að lagfæra, ég skipti um kerti og kveikjulok sem leit út fyrir að vera upphaflegt. Skipti einnig um olíu, síu og bremsuvökva ásamt því að liðka upp tvær dælur en allt leit út fyrir að vera óhreyft frá upphafi.
Ég fyllti bílinn þegar ég keypti hann og er búinn að fara með hálfan tank, það lítur út fyrir að hann sé undir 10 á hundraði það sem af er, virkar mjög léttur og skemmtilegur í keyrslu. Virkar sem skemmtilegasti bíll, ætla þó að sjá til þess að hann skáni bara í minni eigu þar til næsti tekur við honum.