Re: Mercedes Benz E420

#102
Jæja, þessu var framhaldið núna um helgina, vanur maður væri nú sennilega löngu búinn að þessu, en ég er ekki svoleiðis, veit eiginlega ekkert hvað ég er að gera :? :roll: :lol:
Þetta ætii nú samt að klárast um næstu helgi hjá mér, er búinn með tvær hurðar, topplúguna, skottlokið og eitthvað smádrasl
Framhald í næsta hefti :tumbsup2:
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

Re: Mercedes Benz E420

#105
Jæja, næstum því búinn að vinna þetta undir, bara eftir að sparsla frambrettin smávegis, ég verð að segja að þetta er sennilega eitt það leiðinlegasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur :? skil ekki hvernig menn nenna að vinna við þetta alla daga :shock: Að vísu þurfa vanir menn sennilega ekki að sparsla hvern blett 3-4 sinnum eins og aulinn ég :oops:
Ég leysti af húddinu þar sem lakkið var orðið svo sprungið á því, gekk ágætlega miðað við hvað voru mörg lög af lakki á þessu :D
Vona svo að sprautarinn komist fljótlega í þetta, ég klára allavega að vinna undir fljótlega :D
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

Re: Mercedes Benz E420

#106
Mundu svo að sápu þvo húddið vel eftir uppleysirinn og nota vel heitt vatn til að skola :)
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

Re: Mercedes Benz E420

#107
GUMMCO skrifaði:Mundu svo að sápu þvo húddið vel eftir uppleysirinn og nota vel heitt vatn til að skola :)
:shock: Þarf að gera það :? Ég er búinn að slípa allt húddið og sparsla það án þess að þrífa eitthvað sérstaklega :oops:
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

Re: Mercedes Benz E420

#108
Þetta er allavega eins og ég hef gert í mörg ár
aðalega til að hindra að það séu einhverjar leifar af uppleysi sem getur komið fram seinna og það er ekki gott fyrir lakkið sem kemur á þetta :)
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

Re: Mercedes Benz E420

#110
Jæja, þetta þokast í rólegheitum, er að vona að þessi verði sprautaður í júní, komiin fyllir á húddið, topplúgu, plastið og eitthvað smádrasl, þetta kemur allt :D
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000
cron