M-733 var neitað um skoðun !

#1
Já furðulegt mál í dag....

Fór með M-733 (sem er Benz 280 SE '80) í fornbílaskoðun í dag í Borgarnesi. Það gekk nú ekki betur en svo að bílnum var neitað um skoðun og fullyrt að hann ætti að koma á næsta ári. Mér var afhentur 11 miði í rúðuna og sagt að ég hafi fengið vitlausan miða síðast. Hann sagði að í kerfinu væri bíllinn skráður þannig að hann ætti næsta að fara í skoðun 2011.

Hvaða vitleysa er þetta... bíllinn er '80 módel og átti því að fara í skoðun núna og fá 12 miða ekki satt?


Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: M-733 var neitað um skoðun !

#3
Gizmo skrifaði:hvenær er FYRSTI skráningardagur ? Það er það sem ræður, bíllinn er kannski '80 módel en fyrst skráður '79 eða '81
1.1.1980.

Fékk meira að segja voða fínt plagg í bílinn frá fornbílaklúbbnum þar sem kemur fram að hann er '80 módel.



Hitt er annað mál að hann ætti í raun og veru að vera skráður '79 módel... hann fer í sitt fyrsta tékk í Þýskalandi í ágúst '79. En hann er skráður '80.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: M-733 var neitað um skoðun !

#6
það stendur bara fyrsti skráningardagur 1.1.1980 í skráningarskirteini og á öllum pappírum þegar hann fer í skoðun.

Voðalega finnst mér spes ef þeir hafa náð að grafa það allt í einu upp að hann sé í raun og veru '79 módel.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: M-733 var neitað um skoðun !

#10
Gizmo skrifaði:ef bíllinn var kominn á númer í þýskalandi 1979 þá hefur US gögn um það og þess vegna ertu með oddatöluskoðun.

Þetta stendur í skráningarskírteininu.
Ég hef aldrei séð 1979 á neinu plaggi um bílinn nema í þjónustubókinni. En ég veit ekkert um helvítis skráningarskirteinið þannig að ég get ekki athugað það.

En ja hann var þá allavega '80 módel þegar hann fékk 10 miðann í rúðuna í fyrra. Hann hefur þá elst um tvö ár síðasta árið :lol: Hvað ætli hann verði gamall á næsta ári :lol:

Furðulegt mál :shock:
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin