Það náttúrulega fór eitthver starfsmaður í eitthverju ráðuneyti að smíða þessar reglur og það gat vissulega ekki endað vel. Þeir miða við fyrsta skráningardag á Íslandi til að ákveða hvort að bíll á að skoðast á slétttölu eða oddatöluári. Þessum mönnum er náttúrulega alls ekki viðbjargandi með nokkru móti. Með því að hafa þetta svona er ekki nokkur leið að vita hvenær 57 árgerð af Chevrolet á að mæta í skoðun nema að vita hvenær hann var fluttur inn til landsins, notaður eða nýr.....!!! Svo er nú eitt í þessu eins og svo mörgu að ef innflutningsástand er óþekkt, eins og það er á allmörgum fornbílum hér á landi að þá er nýskráningardagur skráður 1.1.1900.
Fyrir vikið er þetta allt í messi og enginn veit neitt og allt komið í einn alsherjar hrærigraut og rugl. Ég þoli ekki svona vanhugsaðar möppudýrareglugerðir sem unnar eru án nokkurs samráðs við þá sem daglega eru í því umhverfi sem að málefnið nær til.
Ef þessir menn hefðu nú bara haft vit á því að hlusta á ábendingar og fara eftir skráðri árgerð í skráningarskírteini, að þá væri miklu minna mál að meðhöndla þetta. Það hefði þá líka mátt nota tækifærið og lagfæra skráðar árgerðir á þeim örfáu bílum þar sem það er ekki alveg rétt skráð.
Nei það er miklu betra að gera sig fullkominn, þ.e.a.s fullkominn asna.

Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
