Síða 1 af 3

M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 21:35
frá Ásgeir Yngvi
Já furðulegt mál í dag....

Fór með M-733 (sem er Benz 280 SE '80) í fornbílaskoðun í dag í Borgarnesi. Það gekk nú ekki betur en svo að bílnum var neitað um skoðun og fullyrt að hann ætti að koma á næsta ári. Mér var afhentur 11 miði í rúðuna og sagt að ég hafi fengið vitlausan miða síðast. Hann sagði að í kerfinu væri bíllinn skráður þannig að hann ætti næsta að fara í skoðun 2011.

Hvaða vitleysa er þetta... bíllinn er '80 módel og átti því að fara í skoðun núna og fá 12 miða ekki satt?

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 21:59
frá Gizmo
hvenær er FYRSTI skráningardagur ? Það er það sem ræður, bíllinn er kannski '80 módel en fyrst skráður '79 eða '81

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:07
frá Ásgeir Yngvi
Gizmo skrifaði:hvenær er FYRSTI skráningardagur ? Það er það sem ræður, bíllinn er kannski '80 módel en fyrst skráður '79 eða '81
1.1.1980.

Fékk meira að segja voða fínt plagg í bílinn frá fornbílaklúbbnum þar sem kemur fram að hann er '80 módel.



Hitt er annað mál að hann ætti í raun og veru að vera skráður '79 módel... hann fer í sitt fyrsta tékk í Þýskalandi í ágúst '79. En hann er skráður '80.

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:21
frá Gizmo
er hann semsagt fyrst skráður í þýskalandi 1979 ?

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:22
frá Gizmo
bíllinn var klárlega ekki nýskráður á nýársdag.......

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:23
frá Ásgeir Yngvi
það stendur bara fyrsti skráningardagur 1.1.1980 í skráningarskirteini og á öllum pappírum þegar hann fer í skoðun.

Voðalega finnst mér spes ef þeir hafa náð að grafa það allt í einu upp að hann sé í raun og veru '79 módel.

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:26
frá Ásgeir Yngvi
http://us.is/Apps/WebObjects/US.woa/wa/dp" onclick="window.open(this.href);return false;

...á us.is er reyndar engin skráningardagur.

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:28
frá Gizmo
ef bíllinn var kominn á númer í þýskalandi 1979 þá hefur US gögn um það og þess vegna ertu með oddatöluskoðun.

Þetta stendur í skráningarskírteininu.

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:32
frá Gunnar Örn
Er þetta nokkuð svo mikið mál, þú kemur bara á næsta ári og færð tveggja ára skoðun þá.
Það væru nú flestir sáttir með að koma á skoðunarstöð og fá miðan bara yfir borðið. :mrgreen:

Re: M-733 var neitað um skoðun !

Innsent: 17 Maí 2010, 22:32
frá Ásgeir Yngvi
Gizmo skrifaði:ef bíllinn var kominn á númer í þýskalandi 1979 þá hefur US gögn um það og þess vegna ertu með oddatöluskoðun.

Þetta stendur í skráningarskírteininu.
Ég hef aldrei séð 1979 á neinu plaggi um bílinn nema í þjónustubókinni. En ég veit ekkert um helvítis skráningarskirteinið þannig að ég get ekki athugað það.

En ja hann var þá allavega '80 módel þegar hann fékk 10 miðann í rúðuna í fyrra. Hann hefur þá elst um tvö ár síðasta árið :lol: Hvað ætli hann verði gamall á næsta ári :lol:

Furðulegt mál :shock: