#11
Mercedes-Benz skrifaði:
gmg skrifaði:
Mercedes-Benz skrifaði:Fyrsta skrefið er að ganga í Fornbílaklúbbinn til að tryggingarnar lækki.

Svo er það eftir þinni ákvörðun hvort þú skráir bílinn sérstaklega sem fornbíl. Bifreiðagjöldin falla niður sjálfkrafa þegar hann verður 25 ára og það þarft þú ekki að eiga við. Það er hinsvegar betra uppá að fá hann tryggðan sem fornbíl, eins og félagar í Fornbílaklúbbnum fá, að skrá hann sem slíkan. Það er gert hjá Umferðarstofu, eða umbjóðendum hennar. Þegar hann hefur verið skráður sem slíkur er mögulegt að fá á hann svokölluð fornmerki, sem eru hin svokölluðu gömlu Steðjanúmer. Ef þú pantar á hann fornmerki er skráningargjald fyrir merkið og breytinguna í fornbíl 500 krónur minnir mig. Þá er bíllinn fullgildur fornbíll í einu og öllu.
Þú þarft ekki að ganga í Fornbílaklúbbinn til að fá fornbílatr., þú þarft að vera með annan bíl tryggðan. Sem er ætlaður til daglegs brúks !

Fornbílatrygging er jú ætluð fyrir litla notkun þ.e. aðallega yfir sumarið
Fornbílatryggingar eru upphaflega verk Fornbílklúbbs Íslands og ég veit til þess að mönnum hefur verið neitað um slíkar tryggingar á grundvelli þess að menn séu ekki félagar í klúbbnum.

Mér finnst það fullkomlega sanngjarnt að klúbburinn fái notið ávinnings af slíkum verkum og sé enga ástæðu fyrir þig GMG að reyna að draga úr því fyrir þetta ágæta félag.

Mér er það fyllilega kunnugt að eitthverjir hafi fengið fornbíla tryggða án þess að vera í félaginu. Hér eru oftast á ferðinni menn sem draga með sér nokkurn fjölda annara trygginga, þ.e.a.s. svona þokkalega stæðir fjölskyldumenn sem tryggja húsið, hversdagsbílinn og fjölskylduna. Nú einnig eru menn sem þekkja eitthvern í tryggingunum og eða geta beytt eitthverjum þrístingi.

Þessar tryggingar eru samningur Fornbílaklúbbs Íslands við tryggingafélögin, en þeir einu sam hafa brotið þetta samkomulag eru tryggingafélögin sjálf. Af því hefur hlotist tjónareynsla á fornbílum í umferðinni sem í flestum tilfellum eru tilkominn vegna óhappa sem utanfélagsmenn hafa valdið og það jafnvel um hávetur.

Þessi óhöpp hafa valdið því að aðilarnir sem hafa brotið samkomulagið hafa séð ástæðu til að hækka iðgjöld fornbíla vegna tjóna sem þeir hafa valdið, og hverjir hafa tapað á því aðrir en félagar í Fornbílaklúbbi Íslands.

Fyrrum Formaður klúbbsins Örn Sigurðsson tók að vísu þetta má upp fyrir stuttu og samdi við eitt af félögunum um betra gjald og það eingöngu fyrir félagsmenn. Slíkt lækkaði tryggingarnar á þessum bílum um hátt í 40% fyrir aðila að klúbbnum.

Hin félögin fylgdu að vísu fast á eftir með nokkuð öfluga lækkun og héldu áfram að brjóta þetta samkomulag eins og áður fyrir vissa útvalda viðskiptavini til að ávinningur hinna aðilanna yrði sem minnstur.

Reyndu svo ekki að segja að það sé ekki til góðs að vera í Fornbílaklúbbi Íslands, því ef hanns eða sambærilegs hagsmunafélags nyti ekki við væru líklega borgaðar fullar tryggingar af þessum bílum í dag.

Ég hef aldrei sagt að það sé ekki til góðs að vera í Fornbílaklúbbnum ( enda búinn að vera þar félagi til margra ára ), ég er bara að benda á þá STAÐREYND að það er ekki nauðsynlegt að vera í klúbbnum til að fá fornb.tr.

Það er óþarfi að segja manninum að hann þurfi að ganga í FBÍ, þegar hann þarf þess ekki !!!!

Hann á kannski bara einn bíl og fær því líklega ekki fornbílatryggingu hvort sem að hann er í FBÍ eða ekki !!!

Rétt skal vera Rétt

Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222

http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

#14
Mér finnst höfuðatriðið að Ásgeir Yngvi fái réttar upplýsingar um það sem hann er að spyrja.

Í fyrsta lagi þá þarft þú að ekki að skrá bílinn þinn sérstaklega sem fornbíl. Þegar hann er orðinn 25 ára, þá falla bifreiðagjöld sjálfkrafa niður.

Í öðru lagi ef þú ætlar að tryggja bílinn þinn með fornbílatryggingu, Þá þarft þú að hafa annan bíl í fullri tryggingu hjá sama tryggingafyrirtæki. Fornbílatrygging byggist á því að bíllinn sé notaður sem fornbíll og sé ekki í fullri daglegri notkun. Ég veit ekki hvort það séu einhver viðmið hjá tryggingafélögunum varðandi kílómetrafjölda á ári, en mig grunar að flestir miði við svona kannski eitthvað um 2000km á ári. Ef þú ert semsagt ekki með annan bíl í fullri notkun, þá færð þú ekki fornbílatryggingu á bílinn þinn hvort sem þú ert í Fornbílaklúbbnum eða ekki.

Hitt er svo annað mál að þeir sem eiga gamla bíla eru líklega með áhuga á gömlum bílum og ættu þá kannski að ganga í Fornbílaklúbbinn og njóta félagsskapar annarra með sama áhugamál, eins og bæði ég og GMG.
Sveinn

#16
RA skrifaði:
gráni skrifaði:
Stinnitz skrifaði:...það eru kannski ekkert allir sem vilja vera í Fornbílaklúbbnum. Ef ég ætti gamlan góðan Benz, sæi ég susum enga ástæðu til að vera í Fornbílaklúbbnum. Þar sem ég hef vel að merkja lítinn áhuga á fornbílum - nema þá fornum Benzum auðvitað
Þá vitum við það, samkvæmt þessu þá er Benz ekki bíll.
Bara eitthvað annað
It's not a car............. it's a Mercedes....................................
The other one's are just cars.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#17
...ég stend við þetta fram í rauðan dauðann, ég hef engan áhuga á gömlum bílum, nema gömlum Benz - bílum 8)
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

#18
Okey segum þá að ég fari ekki í fornbílaklúbbinn,, en bíllinn verður orðin 25 ára og þá þarf ég bara að borga 2x 12.000 á ári sem er eitthvað gjald ég man ekki hvað kallast, en það gjald fer eftir hversu bíllinn er þungur.

Benzinn minn, 280se 1980, er skráður á pabba sem er svo sjálfur með tvo aðra bíla á skrá, Playmouth Breeze '97 og Toyota Starlet '93.

Er það þá þannig að ég þarf í raun ekkert að gera til að þurfa aðeins að borga þennan 2x 12.000 kall á næsta ári ?????

Og má ég þá aðeins aka 2000 km á ári frá og með 1.1 2005 ?????? Það er nú frekar lélegt finnst mér, ég keyri mun meira en það
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#19
Ásgeir Yngvi skrifaði:Okey segum þá að ég fari ekki í fornbílaklúbbinn,, en bíllinn verður orðin 25 ára og þá þarf ég bara að borga 2x 12.000 á ári sem er eitthvað gjald ég man ekki hvað kallast, en það gjald fer eftir hversu bíllinn er þungur.

Nei,þetta gjald sem er venjulega tvisvar á ári dettur út þegar bíllinn þinn verður 25 ára.Fornbílaklúbburinn kom því í gegn að bílar 25 ára og eldri greiða ekki þetta gjald.
Sigurbjörn H.

#20
Benz skrifaði:

ha?? Nú er ég alveg lost,, ef að þungaskatturinn, held að það heiti það, dettur líka út þá þarf ég ekki að borga krónu!!!! Þannig að þetta getur ekki staðist...

Vill plís einhver koma með rétt svar handa mér.. engin er að segja það sama hérna
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin
cron