Mercedes-Benz skrifaði:Fornbílatryggingar eru upphaflega verk Fornbílklúbbs Íslands og ég veit til þess að mönnum hefur verið neitað um slíkar tryggingar á grundvelli þess að menn séu ekki félagar í klúbbnum.gmg skrifaði:Þú þarft ekki að ganga í Fornbílaklúbbinn til að fá fornbílatr., þú þarft að vera með annan bíl tryggðan. Sem er ætlaður til daglegs brúks !Mercedes-Benz skrifaði:Fyrsta skrefið er að ganga í Fornbílaklúbbinn til að tryggingarnar lækki.
Svo er það eftir þinni ákvörðun hvort þú skráir bílinn sérstaklega sem fornbíl. Bifreiðagjöldin falla niður sjálfkrafa þegar hann verður 25 ára og það þarft þú ekki að eiga við. Það er hinsvegar betra uppá að fá hann tryggðan sem fornbíl, eins og félagar í Fornbílaklúbbnum fá, að skrá hann sem slíkan. Það er gert hjá Umferðarstofu, eða umbjóðendum hennar. Þegar hann hefur verið skráður sem slíkur er mögulegt að fá á hann svokölluð fornmerki, sem eru hin svokölluðu gömlu Steðjanúmer. Ef þú pantar á hann fornmerki er skráningargjald fyrir merkið og breytinguna í fornbíl 500 krónur minnir mig. Þá er bíllinn fullgildur fornbíll í einu og öllu.
Fornbílatrygging er jú ætluð fyrir litla notkun þ.e. aðallega yfir sumarið
Mér finnst það fullkomlega sanngjarnt að klúbburinn fái notið ávinnings af slíkum verkum og sé enga ástæðu fyrir þig GMG að reyna að draga úr því fyrir þetta ágæta félag.
Mér er það fyllilega kunnugt að eitthverjir hafi fengið fornbíla tryggða án þess að vera í félaginu. Hér eru oftast á ferðinni menn sem draga með sér nokkurn fjölda annara trygginga, þ.e.a.s. svona þokkalega stæðir fjölskyldumenn sem tryggja húsið, hversdagsbílinn og fjölskylduna. Nú einnig eru menn sem þekkja eitthvern í tryggingunum og eða geta beytt eitthverjum þrístingi.
Þessar tryggingar eru samningur Fornbílaklúbbs Íslands við tryggingafélögin, en þeir einu sam hafa brotið þetta samkomulag eru tryggingafélögin sjálf. Af því hefur hlotist tjónareynsla á fornbílum í umferðinni sem í flestum tilfellum eru tilkominn vegna óhappa sem utanfélagsmenn hafa valdið og það jafnvel um hávetur.
Þessi óhöpp hafa valdið því að aðilarnir sem hafa brotið samkomulagið hafa séð ástæðu til að hækka iðgjöld fornbíla vegna tjóna sem þeir hafa valdið, og hverjir hafa tapað á því aðrir en félagar í Fornbílaklúbbi Íslands.
Fyrrum Formaður klúbbsins Örn Sigurðsson tók að vísu þetta má upp fyrir stuttu og samdi við eitt af félögunum um betra gjald og það eingöngu fyrir félagsmenn. Slíkt lækkaði tryggingarnar á þessum bílum um hátt í 40% fyrir aðila að klúbbnum.
Hin félögin fylgdu að vísu fast á eftir með nokkuð öfluga lækkun og héldu áfram að brjóta þetta samkomulag eins og áður fyrir vissa útvalda viðskiptavini til að ávinningur hinna aðilanna yrði sem minnstur.
Reyndu svo ekki að segja að það sé ekki til góðs að vera í Fornbílaklúbbi Íslands, því ef hanns eða sambærilegs hagsmunafélags nyti ekki við væru líklega borgaðar fullar tryggingar af þessum bílum í dag.
Ég hef aldrei sagt að það sé ekki til góðs að vera í Fornbílaklúbbnum ( enda búinn að vera þar félagi til margra ára ), ég er bara að benda á þá STAÐREYND að það er ekki nauðsynlegt að vera í klúbbnum til að fá fornb.tr.
Það er óþarfi að segja manninum að hann þurfi að ganga í FBÍ, þegar hann þarf þess ekki !!!!
Hann á kannski bara einn bíl og fær því líklega ekki fornbílatryggingu hvort sem að hann er í FBÍ eða ekki !!!
Rétt skal vera Rétt