Ég átti við þetta sem Sveinn benti réttilega á"Það er hinsvegar spurningin hvað tryggingafélögin gerðu ef bíll á fornbílatryggingu, ataður tjöru og salti myndi valda tjóni að vetri til í snjó og ófærð. Gæti hugsanlega valdið viðkomandi vandræðum".HHS skrifaði:hvað meinar þú vinur? aldrei sá ég neitt plagg um það hvað mætti keyra bílinn mikið enn hann var tryggður sem fornbíll.
20.000 km á ári er enginn spariakstur og þar að leiðandi hlýtur þú að átta þig sjálfur á því að svo mikill akstur er notkun upp á hvern dag.Fornbíll er bíll sem almennt séð er kannski ekinn 5 - 6000 km á ári og yfirleitt kominn í geymslu í okt - nóv og ekkert hreyfður þar til vorið eftir.Ég hef nú ekki þurft eitthvað plagg til að segja mér hversu mikið ég megi keyra fornbílinn minn.Ek kannski mesta lagi 3000 km á ári og ekkert að vetri til og þannig hefur mér skilist að fornbílatrygging sé ætluð.