Minn G350 Turbodiesel vegur 2600 kg með fullum tanki og bílstjóralaus samkvæmt viktunarvottorði hafnarvogarinnar í Hafnarfirði sem reyndist nauðsynlegt til að fá skoðun. Fyrir venjulega sumarferð á eftir að bæta við mér (100 kg), konu og barni (70 kg), tjaldi, gasgrilli og viðlegubúnaði (20 kg) aukatönkum (50 kg) mat og fatnaði (20 kg) verkfærum og varahlutum (20 kg), bát (40 kg), utanborðsmótor (30 kg) og svo einhverju meiru (20 kg) - Þetta gera tæplega 3 tonn. Í vetrarferðum er þyngdin svipuð enda er eldsneyti bætti við en báturinn fer oftast ekki með í vetraferðir.sveinn skrifaði:Ég hef tekið eftir því að það ætla margir Gelanderinn mun þyngri en hann er í raun. Kannski er það útlitið, ég veit ekki, en hér eru þyngdartölur fyrir W460:
230GE cabrio 1830kg
230GE stuttur 1880kg
230GE langur 2000kg
280GE cabrio 1895kg
280GE stuttur 1945kg
280GE langur 2065kg
240GD cabrio 1850kg
240GD stuttur 1900kg
240GD langur 2020kg
300GD cabrio 1885kg
300GD stuttur 1935kg
300GD langur 2055kg
Svo er G350 Turbodiesel 2345kg með bílstjóra og fullan tank af bensíni svo dæmi sé tekið um annað en 460.
Ef menn skoða drifrásina í Gelander, þá sjá þeir að hún er öflug en jafnframt þung smíð. Drifsköftin eru þykk og mikil, og hásingarnar ekki síður enda hernaðarsmíð. það segir sitt að hægt sé að setja undir þetta 38" eða þaðan af stærra, og/eða öflugar vélar án þess að breyta drifrásinni nema til að laga hlutföll. Ég held að aflleysið sé fyrst og fremst vegna þess að þessar vélar þurfa að snúa gírkassa, millikassa, 3 stórum drifsköftum og tveim hásingum, hvort sem eitthvað af þessu er læst eða ekki. Reyndar vantar ekki aflið í 280GE bílinn og nýrri bílana, en á móti kemur að þeir þurfa að snúa þessu nákvæmlega sama og eyða því í samræmi við það.
Minn bíll er með minnstu bensínvélinni, 230GE, og mér finnst aðallega vanta aflið hér innanbæjar, t.d. í upptakinu. Þegar hann er kominn út fyrir malbikið, þá breytist aksturslagið og þá finn ég ekki fyrir þessu. Í bratta og torfæru finnst mér hann hafa ágætis tog.
Kosturinn við minn bíl er sá að hann togar alveg fáránlega mikið á mjög lágum snúningi. Þetta hefur aftur á móti þann ókost að bíllinn hitnar gjarnan í snjóakstri þar sem að vatnsdælan er knúin af vélinni. Bergur, sem á einn flottasta G460 bíl landsins leysi hitavandamálið með því að keyra á ofursnúning í snjó. Það er svolítið erfiðara fyrir mig enda á diesel og með sjálfskiptingu sem ég á örugglega eftir að steikja einhvern daginn. Ég mundi náttúrulega leysa þetta vandamál með því að setja lægri hlutföll en ég held að í bili kjósi ég bara að láta Börgvin draga mig upp þegar með þarf. - Annars kemur drifgeta bílsins öll í ljós eftir viku þegar haldið verður í fjögurra daga ferð um Vatnajökul