Re: Breyttir G

#21
Björgvin B skrifaði:460 fær ekki góða umsögn frá þér, greinilega þolir ekki breytingar frá orginal, líklega best að halda sig við malbikið á þessum " jeppum "
Áttu við að það sé ekki óhætt að fara útfyrir malbikið á öðru en 44" og allt minna en það geti tæpast verið hægt að skilgreina sem "jeppa"?

Hvað mig persónulega varðar, þá mun ég sennilega aldrei breyta mínum Gelander til að setja hann á stærri dekk en eru undir honum nú þegar, nema ef vera skyldi að ég setti undir hann 33" í stað þeirra 31" sem undir honum eru (sem þarf enga breytingu). Ég sé bara ekki þörfina á því, vegna þess að þannig breyting myndi bara bæta svo litlu við það sem ég hef áhuga á að gera utan við malbikið (sem miðast mest við sumarferðir á hálendinu og minni tvísýnu á vetrunar). Þá fæ ég mér frekar bara Unimog, í stað þess að búa til Unimog úr Gelanderinum.

Í mínum augum er Gelanderinn nógu mikill trukkur fyrir og ekki þess virði að breyta honum í ónothæfan bíl í annað en að bröltast uppi á jökli á 4 pundum á 44" (eins og Einar bendir á).

Sveinn

Re: Breyttir G

#22
Það hefur nú verið áhugavert að sjá hvað Martin hefur verið að fara á sínum óbreytta G-class ;)
Sýnir bara að þessir bílar komast ansi langt óbreyttir 8)

Ef maður vill fara lengra þá er það bara spurning um Unimog eða að reyna að komast einhversstaðar yfir 6 hjóla Puch Pinzgauer :mrgreen:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Breyttir G

#23
sveinn skrifaði:
Björgvin B skrifaði:460 fær ekki góða umsögn frá þér, greinilega þolir ekki breytingar frá orginal, líklega best að halda sig við malbikið á þessum " jeppum "
Áttu við að það sé ekki óhætt að fara útfyrir malbikið á öðru en 44" og allt minna en það geti tæpast verið hægt að skilgreina sem "jeppa"?

Hvað mig persónulega varðar, þá mun ég sennilega aldrei breyta mínum Gelander til að setja hann á stærri dekk en eru undir honum nú þegar, nema ef vera skyldi að ég setti undir hann 33" í stað þeirra 31" sem undir honum eru (sem þarf enga breytingu). Ég sé bara ekki þörfina á því, vegna þess að þannig breyting myndi bara bæta svo litlu við það sem ég hef áhuga á að gera utan við malbikið (sem miðast mest við sumarferðir á hálendinu og minni tvísýnu á vetrunar). Þá fæ ég mér frekar bara Unimog, í stað þess að búa til Unimog úr Gelanderinum.

Í mínum augum er Gelanderinn nógu mikill trukkur fyrir og ekki þess virði að breyta honum í ónothæfan bíl í annað en að bröltast uppi á jökli á 4 pundum á 44" (eins og Einar bendir á).
hann pisslekur olíu á alla kanta, varahlutirnir er fáránlega dýrir, hann er 2,6 tonn sem er alltof þungt og svo er hann ævintýralega grútmáttlaus þrátt fyrir að vera með 3,5 lítra vél!

Ég myndi ekki þora langt út fyrir malbikið á bíl sem pisslekur olíu !! :wink:

Re: Breyttir G

#24
Verið alveg rólegir drengir,

G er ágætis bílar, ferkantaðir, rúmgóðir og fjaðra vel. Víst eru þeir þungir og ekki nema yngri gerðir með þokkalegt vélarafl.

Snilldin við þessa bíla er að ekki er nauðsynlegt að slást við upphækkanir eða skipta út innviðum hásinga til að aka þeim á allt að 38" börðum.
Sem efniviður í 44" breytingu þá hefur G ekkert fram yfir aðrar gerðir þar sem þá þarf að endursmíða alla fjöðrun, slást við stýri sköft og alt venjulega ruglið.

Það fæst ágæt niðurgírun með því að setja í þá 5 gíra gírkassa úr gömlum 309 sendibíl.
Og þeir eru glerfínir í stýri á 35 tommu dekkjum á réttum felgum.
Munið að allar hálendisleiðirnar voru eknar í áratugi á Rússajeppum, Landróverum Willysum og Víbonum, löngu áður en menn sáu blöðrudekk.
Ég verð hinsvegar að viðurkenna að langur G á 205/85/16 er einn alvonlausasti jeppi sem ég hef ekið. Á 31" dekkjum var hann farinn að jafnast á við 74 módelið af stuttum Landróver. Á 35" dekkum og lægri gírun er þetta orðinn ágætis bíll á slóðum og í ófærð og hegðar sér óaðfinnanleg á malbikinu þótt hann sé stýrisdemparalaus.

Ég er hinsvegar það góðu vanur að það hvarflar ekki að mér að aka hálendisvegina á það litlum dekkum að þáu ráði ekki við titringslausan akstur á þvottabrettum.

Fyrir þá sem nota gamla beinskipta G til fjallaaksturs þá get ég mælt með felgubreikkun, köntum og gírkassaskiptum (fyrir 35" dekkin) til að bæta utanvegargetu og þægindi, án þess að draga úr rásfestu eða þægindum á þjóðveginum.

Aðal gallinn er að 460 bíllinn er með framhjólalegulíf upp á 50,000 Km á 10" breiðum felgum......

Re: Breyttir G

#25
Ég tek heilshugar undir með Sveini og Loka; best er að halda sig við að hafa jeppan passlegann í það sem maður vill nota hann í. Áður en ég höndlaði minn G átti ég Galloper. Eftir að ég setti hann á 33 tommur og breiðar felgur, setti 2,5 tommu púst og skrúfaði olíuverkið í botn og setti tappa helstu öryggiventla var ég stóránægður með hann. Ég náði alveg fáranlegu afli úr bílnum og djöflaði honum um hvern einasta fjallveg sem fannst að sumri til og plássið var meira en í G. Ég gerði svo það sama við G áður en ég breytti honum, elti jafnvel 38 tommu bíla upp á Eyjafjallajökul og fleira.
Eins og einhver benti á í þessum þræði er kosturinn við G að hann er með sterkri driflínu og góðum læsingum svo að litlu þarf að breyta. En hann drífur ekkert meira en aðrir bíla sem búið er að setja allt þetta dót í, ef til vill minna af því að hann er svolítið rassþungur. Það þýðir ekkert að lifa í einhverri afneitun um gallana sem eru á þessum bílum, þeir hverfa ekkert við það. Mér finnst reyndar alveg sláandi hvað minn G hefur góða akstureiginleika á 38 tommum og ég held að það sé einmitt vegna þess hversu lítið ég breytti honum.

Re: Breyttir G

#26
Björgvin B skrifaði:
sveinn skrifaði:
Björgvin B skrifaði:460 fær ekki góða umsögn frá þér, greinilega þolir ekki breytingar frá orginal, líklega best að halda sig við malbikið á þessum " jeppum "
Áttu við að það sé ekki óhætt að fara útfyrir malbikið á öðru en 44" og allt minna en það geti tæpast verið hægt að skilgreina sem "jeppa"?

Hvað mig persónulega varðar, þá mun ég sennilega aldrei breyta mínum Gelander til að setja hann á stærri dekk en eru undir honum nú þegar, nema ef vera skyldi að ég setti undir hann 33" í stað þeirra 31" sem undir honum eru (sem þarf enga breytingu). Ég sé bara ekki þörfina á því, vegna þess að þannig breyting myndi bara bæta svo litlu við það sem ég hef áhuga á að gera utan við malbikið (sem miðast mest við sumarferðir á hálendinu og minni tvísýnu á vetrunar). Þá fæ ég mér frekar bara Unimog, í stað þess að búa til Unimog úr Gelanderinum.

Í mínum augum er Gelanderinn nógu mikill trukkur fyrir og ekki þess virði að breyta honum í ónothæfan bíl í annað en að bröltast uppi á jökli á 4 pundum á 44" (eins og Einar bendir á).
hann pisslekur olíu á alla kanta, varahlutirnir er fáránlega dýrir, hann er 2,6 tonn sem er alltof þungt og svo er hann ævintýralega grútmáttlaus þrátt fyrir að vera með 3,5 lítra vél!

Ég myndi ekki þora langt út fyrir malbikið á bíl sem pisslekur olíu !! :wink:

Ja, ég keyrði nú minn í þrjár vikur um hálendið á einum mótorpúða og þegar maður er á bíl sem eyðir 17 lítrum þá er maður nú ekki að kippa sér upp við smá olíuleka til viðbótar. En ég hélt að Benz ætti bara að leka smurolíu en ekki dísel.

Re: Breyttir G

#27
sveinn skrifaði:
Björgvin B skrifaði:460 fær ekki góða umsögn frá þér, greinilega þolir ekki breytingar frá orginal, líklega best að halda sig við malbikið á þessum " jeppum "
Áttu við að það sé ekki óhætt að fara útfyrir malbikið á öðru en 44" og allt minna en það geti tæpast verið hægt að skilgreina sem "jeppa"?

Hvað mig persónulega varðar, þá mun ég sennilega aldrei breyta mínum Gelander til að setja hann á stærri dekk en eru undir honum nú þegar, nema ef vera skyldi að ég setti undir hann 33" í stað þeirra 31" sem undir honum eru (sem þarf enga breytingu). Ég sé bara ekki þörfina á því, vegna þess að þannig breyting myndi bara bæta svo litlu við það sem ég hef áhuga á að gera utan við malbikið (sem miðast mest við sumarferðir á hálendinu og minni tvísýnu á vetrunar). Þá fæ ég mér frekar bara Unimog, í stað þess að búa til Unimog úr Gelanderinum.

Í mínum augum er Gelanderinn nógu mikill trukkur fyrir og ekki þess virði að breyta honum í ónothæfan bíl í annað en að bröltast uppi á jökli á 4 pundum á 44" (eins og Einar bendir á).
[img]http://i114.photobucket.com/albums/n246 ... /38332.jpg[/img]

44 tommu færi

[img]http://i114.photobucket.com/albums/n246 ... /38317.jpg[/img]

44 tommu færi

Það er ekkert að því að vera með bíl á 44 tommu dekkjum í ferðum en skipta svo yfir á 38 þegar komið er á malbikið ! Tekur mig ekki meira en 30 mín ! En ég er sammála Einsa um að 38 dugar yfirleitt en ef um færi eins og er á þessum myndum þá er 38 tommu ferðamennska útlilokuð nema í spotta :wink:

Re: Breyttir G

#28

Ég hef fyrir ófrávíkjanlega reglu að fara ekki í lengri fjallaferðir nema með mér reyndari fjallamönnum og í svona færi eins og sýnt er á myndunum er einmitt svo gott að eiga góðan spotta og þekkja enn betri menn á 44 tommum

Re: Breyttir G

#30
Ég hef tekið eftir því að það ætla margir Gelanderinn mun þyngri en hann er í raun. Kannski er það útlitið, ég veit ekki, en hér eru þyngdartölur fyrir W460:

230GE cabrio 1830kg
230GE stuttur 1880kg
230GE langur 2000kg

280GE cabrio 1895kg
280GE stuttur 1945kg
280GE langur 2065kg

240GD cabrio 1850kg
240GD stuttur 1900kg
240GD langur 2020kg

300GD cabrio 1885kg
300GD stuttur 1935kg
300GD langur 2055kg

Svo er G350 Turbodiesel 2345kg með bílstjóra og fullan tank af bensíni svo dæmi sé tekið um annað en 460.

Ef menn skoða drifrásina í Gelander, þá sjá þeir að hún er öflug en jafnframt þung smíð. Drifsköftin eru þykk og mikil, og hásingarnar ekki síður enda hernaðarsmíð. það segir sitt að hægt sé að setja undir þetta 38" eða þaðan af stærra, og/eða öflugar vélar án þess að breyta drifrásinni nema til að laga hlutföll. Ég held að aflleysið sé fyrst og fremst vegna þess að þessar vélar þurfa að snúa gírkassa, millikassa, 3 stórum drifsköftum og tveim hásingum, hvort sem eitthvað af þessu er læst eða ekki. Reyndar vantar ekki aflið í 280GE bílinn og nýrri bílana, en á móti kemur að þeir þurfa að snúa þessu nákvæmlega sama og eyða því í samræmi við það.

Minn bíll er með minnstu bensínvélinni, 230GE, og mér finnst aðallega vanta aflið hér innanbæjar, t.d. í upptakinu. Þegar hann er kominn út fyrir malbikið, þá breytist aksturslagið og þá finn ég ekki fyrir þessu. Í bratta og torfæru finnst mér hann hafa ágætis tog.
Sveinn
cron