Re: Breyttir G

#12
Þessi umræða finnst mér skemmtilega furðuleg. Ég velti mikið fyrir mér að setja minn 463 á 44 tommu dekk en ákvað að gera það ekki vegna þess að það mundi fela í sér mun erfiðara breytingarferli, meira vesen, meira slit og þar af leiðandi meiri kostnað. ÞAð sama á við um millikassa og skriðgíra og ég mundi reyndar glaður nota Mussódót ef það ætti við. Ég er dauðfeginn að ég henti Benzfjöðruninni að aftan og fékk mér Toyotugorma. Ég er með minn á orgínað 4:10 hlutföllum sem er vitaskuld ókostur en ég ætla ekki að fá mér neitt lægra en 4:88 vegna þess að ég hef afskaplega gaman af að geta keyrt bílinn á venjulegum vegum.

Minn er ágætur í snjó eins og er og drífur svona á við Patrol á 38 tommum. Ef það dugir ekki til þá á ég ferlega góðan spotta og það eru alltaf einhverjir reiðubúnir til að kippa manni upp

Re: Breyttir G

#13
nú ættla ég að voga mér að spurja, er hægt að setja 463 á unimok hásingar. Þá er komin auka niður gírun út við hjól og myndi það ekki gefa bílnum aukna hæð sem þyrfti til að koma 44" undir. Bara pæling frá Land Rover eiganda :lol:
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: Breyttir G

#14
Olbogi skrifaði:nú ættla ég að voga mér að spurja, er hægt að setja 463 á unimok hásingar. Þá er komin auka niður gírun út við hjól og myndi það ekki gefa bílnum aukna hæð sem þyrfti til að koma 44" undir. Bara pæling frá Land Rover eiganda :lol:
Held að Unimog hásingar henti ekki. Betra væri að skoða hásingar með niðurgírun frá Landrover eða Volvo Lapplander.
Jónas
849 3640
Mercedes Benz Unimog 404 ´61
Vél: OM 617 912 Turbo/intercooler
Mercedes Benz 300D ´83
Vél: OM 617 952 Turbo beinskiptur 5 gíra (kassi úr sendibíl)

Re: Breyttir G

#15
JónasH skrifaði:
Olbogi skrifaði:nú ættla ég að voga mér að spurja, er hægt að setja 463 á unimok hásingar. Þá er komin auka niður gírun út við hjól og myndi það ekki gefa bílnum aukna hæð sem þyrfti til að koma 44" undir. Bara pæling frá Land Rover eiganda :lol:
Held að Unimog hásingar henti ekki. Betra væri að skoða hásingar með niðurgírun frá Landrover eða Volvo Lapplander.
var bara að spá því sumir hérna vilja halda þessu þýsku, en land rover er náttúrulega topp stuff á meðan það er ekki bilað :lol:
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið

Re: Breyttir G

#16
Mér finnst þetta vera spurning um tvennt: annars vegar pening en allt sem fer í G kostar hönd og fót á meðan Land Rover dótið er næstum gefins í samanburði. Hins vegar finnst mér þetta vera spurning um notkun. G-wagon með 6:17 hlutföll hlýtur að vera dauðleiðinlegur í almennum akstri og þú þarft þessi hlutföll bara í erfiðum snjóakstri. Hámarkshraðinn hefur nú aldrei verið mikill á G og með svona hlutföll er hann kominn niður í 70. Ég vil alla vega eiga jeppa sem ég hef gaman af að keyra jafnt sumar sem vetur.

Re: Breyttir G

#17
JónasH skrifaði:
Olbogi skrifaði:nú ættla ég að voga mér að spurja, er hægt að setja 463 á unimok hásingar. Þá er komin auka niður gírun út við hjól og myndi það ekki gefa bílnum aukna hæð sem þyrfti til að koma 44" undir. Bara pæling frá Land Rover eiganda :lol:
Held að Unimog hásingar henti ekki. Betra væri að skoða hásingar með niðurgírun frá Landrover eða Volvo Lapplander.
Sælir,

það er allt annar standard á öllum drifbúnaði frá Japan en frá Land Rover, allt mun veigaminna í Land Rover samanber öxla og drif, varðandi Unimog hásingarnar þá er ég sammála Jónasi þær hennta alls ekki, eru alltof þungar og myndu trúlega einungis hennta í mjög stóra bíla eins og Ford 350 epa Dodge Ram, Volvo hásingarnar eru töluvert léttari og með niðurgírun út í hjól 1/6 eða 1/7 og með litlum tilkostnaði er hægt að koma fyrir úrhleypibúnaði ! Einsi þú ættir að hugleiða að fá þér 5/ 42 hlutföll eða 5/13 frá Toyota, það yrði gríðarlegur munur á bílnum, varðandi flotið þá er 44 tomman gríðarleg. G bíllinn og Patrol eldri gerðin eru að vikta svipað 2,5 tonn eftir því sem mér skilst !

Re: Breyttir G

#18
Til hvers í ósköpunum ætti ég að fá mér 5:13 eða 5:42 út Toyotu í Benz þegar ég get alveg eins fengið mér 5:13 eða 5:33 frá Benz? - Málið er óskaplega einfalt, ég vil geta keyrt á 100 km hraða á þess að vera kominn í 8000 snúninga. Ég veit líka að 44 tomman skapar miklu meira flot en um leið miklu meira slit. Hjólalegurnar að framan í 460 bílunum þola varla 38 tommur hvað þá 44. Og 44 tommu dekk kosta miklu meiri breytingar og tómt vesen og mér finnst það ekki þess virði. Ég vil eiga jeppa sem er ódýrt að breyta, það sem ekki er átt við driflínu meir en nauðsyn krefur, þar sem jafnvæginu er ekki raskað og umfram allt - sem er nothæfur í eitthvað annað en eingöngu að fljóta vel í snjó! Ef mig mundi BARA langa í svoleiðis jeppa mundi ég kaupa mér Defender, setja áströlsku öxlana undir með læsingum og drifhlutföllum, 44 tommur, eitthvað amerískt í húddið, kaupa mér heyrnartól og kuldagalla og fara á fjöll. Eina ástæðan fyrir því að ég keypi mér G var að ég fékk hann langt undir markaðsverði og það kostaði mig skít og ekkert að breyta honum. Ég meina G hefur fáránlega galla - það er ekki hægt að fá nothæfar felgur undir hann, hann pisslekur olíu á alla kanta, varahlutirnir er fáránlega dýrir, hann er 2,6 tonn sem er alltof þungt og svo er hann ævintýralega grútmáttlaus þrátt fyrir að vera með 3,5 lítra vél!

Re: Breyttir G

#19
Einsi skrifaði:Til hvers í ósköpunum ætti ég að fá mér 5:13 eða 5:42 út Toyotu í Benz þegar ég get alveg eins fengið mér 5:13 eða 5:33 frá Benz? - Málið er óskaplega einfalt, ég vil geta keyrt á 100 km hraða á þess að vera kominn í 8000 snúninga. Ég veit líka að 44 tomman skapar miklu meira flot en um leið miklu meira slit. Hjólalegurnar að framan í 460 bílunum þola varla 38 tommur hvað þá 44. Og 44 tommu dekk kosta miklu meiri breytingar og tómt vesen og mér finnst það ekki þess virði. Ég vil eiga jeppa sem er ódýrt að breyta, það sem ekki er átt við driflínu meir en nauðsyn krefur, þar sem jafnvæginu er ekki raskað og umfram allt - sem er nothæfur í eitthvað annað en eingöngu að fljóta vel í snjó! Ef mig mundi BARA langa í svoleiðis jeppa mundi ég kaupa mér Defender, setja áströlsku öxlana undir með læsingum og drifhlutföllum, 44 tommur, eitthvað amerískt í húddið, kaupa mér heyrnartól og kuldagalla og fara á fjöll. Eina ástæðan fyrir því að ég keypi mér G var að ég fékk hann langt undir markaðsverði og það kostaði mig skít og ekkert að breyta honum. Ég meina G hefur fáránlega galla - það er ekki hægt að fá nothæfar felgur undir hann, hann pisslekur olíu á alla kanta, varahlutirnir er fáránlega dýrir, hann er 2,6 tonn sem er alltof þungt og svo er hann ævintýralega grútmáttlaus þrátt fyrir að vera með 3,5 lítra vél!

460 fær ekki góða umsögn frá þér, greinilega þolir ekki breytingar frá orginal, líklega best að halda sig við malbikið á þessum " jeppum "

Re: Breyttir G

#20
Björgvin B skrifaði:

Hmmm, Björgvin, ekki skil ég nú hvernig þú getur fengið það út úr þessum málflutningi þó að ég bendi á að framhjólalegurnar séu helst til veigalitlar og þar af leiðandi slitni þær hraðar ef bíllinn er settur á 38 tommu dekk.
cron