#6
fráM
Hr.annar, hvaða stillingu á köplum ertu að tala um ?
Allt tengt kveikju er innan við tveggja ára, kerti, þræðir, kveikjulok og hamar, háspennukefli, loftflæðiskynjari og spjaldstöðurofi. Það er nýbúið að tengja hann við tölvu og stilla hann, allt virtist í stakasta lægi með kveikju við þá skoðun.
Málið er að hann er ljúfur sem lamb í 2 til 3 daga en svo kannski þegar maður er stopp á ljósu og er að taka af stað þá byrjar hann að hökta en spýtir því svo úr sér, eins eftir gangsetningu þegar maður er að bakka út úr stæði og er með fótinn á bremsu að þá fær hann stundum hland fyrir hjartað og eins eftir að hann er orðin heitur og drepið er á þá er hann leiðinlegur í gang aftur, þarf mikið start en drullast svo í gang, um daginn þá var bara ekki hægt að koma honum af stað, rauk í gang og gekk hægaganginn en þegar hann var settur í gírinn þá drap hann á sér, ég var með hann í gangi og fór að fikta í þessum rofa, ítti á hann og þá rauk hann upp á snúning og gekk bara á fullu á 3000 sn cirka eða þar til ég bankaði í hann og þá datt hann niður í hægagang aftur og þá fyrst kom ég honum af stað, það ber aldrei á þessu í keyrslu bara við að taka af stað og eins að koma honum í gang heitum þó ekki alltaf, það hefur eitthvað minna borið á þessu núna síðustu daga en þetta er eitthvað tengt þessum rofa finnst mér eða þá því sem les skilaboðin frá honum, er það tölvan eða veit það einhver.