Síða 1 af 2

Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 01 Mar 2009, 18:30
frá M
Er með 230e 1991 sem er með leiðinda gangtruflanir öðru hvoru og mér finnst eins og það tengist mikrórofanum sem er á inngjafar unitinu undir lofthreinsaranum, hvítir rofi með þessu númeri 002 545 68 14, hverju stjórnar þessi rofi og í hvað tengist hann ? Einhver sem getur sagt mér þetta.?

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 05 Mar 2009, 17:23
frá Þórður A.
Af minni reynslu eru þessi kveikjulok í 91-92 230e ekkert svo góð...maður er alltaf að sjá þræði um þau og svo þurfti bróðir minn að skipta um nýlegt lok hjá sér :roll:

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 05 Mar 2009, 17:28
frá magnuz
sko , basic hlutir sem er gott að athuga

Loft

Benzín

Kveikja

fara bara í rólegheitunum í gegnum þetta
Ef að það er ekki eitthvað af þessu þá er þetta eitthvað lítið , óaugljóst og ódyrt
eða stórt og hrikalega dýrt :lol:

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 05 Mar 2009, 21:37
frá hr.annar
er þetta ekki rofinn sem segir bílnum að hann eigi að ganga hægagang sýnist þú vera ap tala um hann hvap sem þú gerir ekki fikta í stillingunum á köplunum

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 05 Mar 2009, 23:10
frá M
Hr.annar, hvaða stillingu á köplum ertu að tala um ?

Allt tengt kveikju er innan við tveggja ára, kerti, þræðir, kveikjulok og hamar, háspennukefli, loftflæðiskynjari og spjaldstöðurofi. Það er nýbúið að tengja hann við tölvu og stilla hann, allt virtist í stakasta lægi með kveikju við þá skoðun.
Málið er að hann er ljúfur sem lamb í 2 til 3 daga en svo kannski þegar maður er stopp á ljósu og er að taka af stað þá byrjar hann að hökta en spýtir því svo úr sér, eins eftir gangsetningu þegar maður er að bakka út úr stæði og er með fótinn á bremsu að þá fær hann stundum hland fyrir hjartað og eins eftir að hann er orðin heitur og drepið er á þá er hann leiðinlegur í gang aftur, þarf mikið start en drullast svo í gang, um daginn þá var bara ekki hægt að koma honum af stað, rauk í gang og gekk hægaganginn en þegar hann var settur í gírinn þá drap hann á sér, ég var með hann í gangi og fór að fikta í þessum rofa, ítti á hann og þá rauk hann upp á snúning og gekk bara á fullu á 3000 sn cirka eða þar til ég bankaði í hann og þá datt hann niður í hægagang aftur og þá fyrst kom ég honum af stað, það ber aldrei á þessu í keyrslu bara við að taka af stað og eins að koma honum í gang heitum þó ekki alltaf, það hefur eitthvað minna borið á þessu núna síðustu daga en þetta er eitthvað tengt þessum rofa finnst mér eða þá því sem les skilaboðin frá honum, er það tölvan eða veit það einhver.

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 06 Mar 2009, 09:38
frá hr.annar
ekki það að ég sé doktor í þessum málum...
en ég er að tala um inngjafarkapalinn og þá alla undir lofthreinsaranum einmitt þar sem einn rofi er. sem er sá rofi sem ég held að þú sért að tala um. ef svo vill til að við erum að tala um sama rofan þá er það rofinn sem gefur þau skilaboð að vélin eigi að ganga hægagang (650rpm :?: ) gætir prófað að hreins skautin á honum með kontaktspray-i...

vá ég skil ekki einusinni þennnann texta...

allavega gangi þér vel

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 07 Mar 2009, 20:37
frá M
Jú skil þig , tekka á þessu.

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 16 Mar 2009, 19:11
frá jeepson
er ekki bíllinn bara svona tilfinningalegur. meina konurnar eru svona einusinni í mánuði. er þetta bara ekki svipað vesen með bílinn :lol:

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

Innsent: 25 Júl 2009, 00:18
frá Playman
Ég er einmitt með eins bíl og þetta hljómar eins og það sem að ég á við að stríða,
það er að hann er með leiðindar gangtruflanir og á það til að drepa á sér ef ég fer úr
R í D.
Ég fór og leitaði á netinu af þessu og mér var sagt að þetta gæti verið "idle air control valve"
og hann gæti verið fullur af drullu sem hefur safnast up eftir árin.
en ég hef ekki hugmynd hvar þessi ventill/skinjari er staðsettur, er að bíða eftir svari frá þeim með það.

Gangi þér vel