Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

#4
sko , basic hlutir sem er gott að athuga

Loft

Benzín

Kveikja

fara bara í rólegheitunum í gegnum þetta
Ef að það er ekki eitthvað af þessu þá er þetta eitthvað lítið , óaugljóst og ódyrt
eða stórt og hrikalega dýrt :lol:
Magnús B Arnarsson
Subaru Impreza 1996 (winter beater)
Polo 1.4 1999 (seldur)
Vento 2.0 1994 (seldur)
Benz E220 1994 (í notkun)
Kymco 50cc :cool: (selt)
"Losers always whine about their best. Winners go home and f*** the prom queen."

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

#6
Hr.annar, hvaða stillingu á köplum ertu að tala um ?

Allt tengt kveikju er innan við tveggja ára, kerti, þræðir, kveikjulok og hamar, háspennukefli, loftflæðiskynjari og spjaldstöðurofi. Það er nýbúið að tengja hann við tölvu og stilla hann, allt virtist í stakasta lægi með kveikju við þá skoðun.
Málið er að hann er ljúfur sem lamb í 2 til 3 daga en svo kannski þegar maður er stopp á ljósu og er að taka af stað þá byrjar hann að hökta en spýtir því svo úr sér, eins eftir gangsetningu þegar maður er að bakka út úr stæði og er með fótinn á bremsu að þá fær hann stundum hland fyrir hjartað og eins eftir að hann er orðin heitur og drepið er á þá er hann leiðinlegur í gang aftur, þarf mikið start en drullast svo í gang, um daginn þá var bara ekki hægt að koma honum af stað, rauk í gang og gekk hægaganginn en þegar hann var settur í gírinn þá drap hann á sér, ég var með hann í gangi og fór að fikta í þessum rofa, ítti á hann og þá rauk hann upp á snúning og gekk bara á fullu á 3000 sn cirka eða þar til ég bankaði í hann og þá datt hann niður í hægagang aftur og þá fyrst kom ég honum af stað, það ber aldrei á þessu í keyrslu bara við að taka af stað og eins að koma honum í gang heitum þó ekki alltaf, það hefur eitthvað minna borið á þessu núna síðustu daga en þetta er eitthvað tengt þessum rofa finnst mér eða þá því sem les skilaboðin frá honum, er það tölvan eða veit það einhver.

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

#7
ekki það að ég sé doktor í þessum málum...
en ég er að tala um inngjafarkapalinn og þá alla undir lofthreinsaranum einmitt þar sem einn rofi er. sem er sá rofi sem ég held að þú sért að tala um. ef svo vill til að við erum að tala um sama rofan þá er það rofinn sem gefur þau skilaboð að vélin eigi að ganga hægagang (650rpm :?: ) gætir prófað að hreins skautin á honum með kontaktspray-i...

vá ég skil ekki einusinni þennnann texta...

allavega gangi þér vel

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

#9
er ekki bíllinn bara svona tilfinningalegur. meina konurnar eru svona einusinni í mánuði. er þetta bara ekki svipað vesen með bílinn :lol:
Kveðja Gísli.

Nissan Patrol 94 38" TRÖLLI
Nissan patrol 98 33 heimilis bíllinn
Dodge ram 5.9 cummins 93 HRÚTURINN
DODGE RAM HEMI MAGNUM 03 (djásnið) seldur :(
Benz 300D 1989 því miður seldur og og sé mikið eftir honum:(
Benz 190 1985 R.I.P

Re: Gangtruflun sem kemur og fer.?

#10
Ég er einmitt með eins bíl og þetta hljómar eins og það sem að ég á við að stríða,
það er að hann er með leiðindar gangtruflanir og á það til að drepa á sér ef ég fer úr
R í D.
Ég fór og leitaði á netinu af þessu og mér var sagt að þetta gæti verið "idle air control valve"
og hann gæti verið fullur af drullu sem hefur safnast up eftir árin.
en ég hef ekki hugmynd hvar þessi ventill/skinjari er staðsettur, er að bíða eftir svari frá þeim með það.

Gangi þér vel