Mercedes-Benz 190E 1992
#1Keypti þennan um daginn til að hafa fyrir yngri dóttur mína. Fínn og óslitinn bíll og nánast alveg óryðgaður. Hann er ekki keyrður nema 117þús og fylgir smurbók frá upphafi. Ónotaðir og glansandi öskubakkar og alveg ónotað Continental varadekk í skottinu. Mér finnst litasamsetningin á bílnum alveg dásamlega púkaleg
Er með pínu móral að láta hann í hendurnar á 19 ára unglingi, því þetta er eiginlega eintak til að varðveita. Það eru nefnilega ekki margir W201 eftir svona óslitnir 

Sveinn