Síða 1 af 1
Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 06 Apr 2014, 21:56
frá sveinn
Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 06 Apr 2014, 22:27
frá JBV
Mér finnst þetta geggjað flott eintak....svona púkalega flott.

Var einmitt að spögulera í þessum þegar hann var auglýstur á dögunum. Kílómetrastaðan heillaði. En ég efast ekki um að þetta sé fínasti bíll fyrir Láru - og pabbi gamli eigi eftir að passa upp á það helsta í umhirðu bílsins meðan hún hefur hann í sinni eigu.

Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 06 Apr 2014, 23:34
frá gmg
Snilldar bíll, svo fáranlegir litir að bíllinn er bara flottur !
Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 06 Apr 2014, 23:38
frá sveinn
JBV skrifaði:Mér finnst þetta geggjað flott eintak....svona púkalega flott.

Var einmitt að spögulera í þessum þegar hann var auglýstur á dögunum. Kílómetrastaðan heillaði. En ég efast ekki um að þetta sé fínasti bíll fyrir Láru - og pabbi gamli eigi eftir að passa upp á það helsta í umhirðu bílsins meðan hún hefur hann í sinni eigu.

Takk fyrir það Jón

Já, ég hugsaði málið þannig að þar sem pabbi gamli er hvort sem er dæmdur til að sjá um viðhaldið á bílnum sem hún fengi sér, þá fannst mér alveg eins gott að velja þetta sjálfur og hafa það þá bíl sem ég hefði áhuga á að viðhalda

Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 06 Apr 2014, 23:42
frá sveinn
gmg skrifaði:Snilldar bíll, svo fáranlegir litir að bíllinn er bara flottur !
Já, þetta er 623 eða "hellelfenbein", þýski leigubílaliturinn. Alveg dásamlega púkalegur við rauða innréttingu!

Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 07 Apr 2014, 15:56
frá Lárusson
Flottur óslitinn bíll, til hamingju með hann. Mér finnst vanta það sem máli skiptir í söguna, hvað finnst dótturinni um bílinn og þennan lit sem "allir" eru að tala um?

Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 07 Apr 2014, 23:47
frá Þröstur
Holy crap!!! Þessi litasamsetning.

Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 08 Apr 2014, 15:36
frá sveinn
Lárusson skrifaði:Flottur óslitinn bíll, til hamingju með hann. Mér finnst vanta það sem máli skiptir í söguna, hvað finnst dótturinni um bílinn og þennan lit sem "allir" eru að tala um?

Stelpan er nú ekki mikið að velta útlitinu fyrir sér, held ég, enda ekki með sömu bíladelluna og pabbinn. Fegnust að þurfa ekki lengur að taka strætó og svona. Annars er verið að skipta um heddpakkningu núna þannig að hún er ekki komin með bílinn, en hún er mjög sátt við hann af myndum og spennt að fá hann.
Mér finnst þessi litur alveg í góðu lagi og á innréttingunni líka, en saman er þetta svolítið spes. Mestu finnst mér þó skipta að þetta virðist vera þéttur og góður bíll

Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 08 Apr 2014, 16:38
frá andrz
Huggulegt eintak
Re: Mercedes-Benz 190E 1992
Innsent: 13 Apr 2014, 00:07
frá Björgvin
Á 15" W201 áfelgur orginal undir þennan handa þér á 10 þús kall, svona eins og eru undir W126 hjá mér og voru á SEC num hjá þér ef mig minnir rétt

(sama útlit en ekki breidd, er með orginal W201 felgur)
Annars finnst mér þetta gríðarlega fallegur bíll og innréttingin er bara kúl... ekta 80´s sem mér skilst að sé að komast í tísku aftur
