Mercedes-Benz 190E 1992

#1
Keypti þennan um daginn til að hafa fyrir yngri dóttur mína. Fínn og óslitinn bíll og nánast alveg óryðgaður. Hann er ekki keyrður nema 117þús og fylgir smurbók frá upphafi. Ónotaðir og glansandi öskubakkar og alveg ónotað Continental varadekk í skottinu. Mér finnst litasamsetningin á bílnum alveg dásamlega púkaleg :) Er með pínu móral að láta hann í hendurnar á 19 ára unglingi, því þetta er eiginlega eintak til að varðveita. Það eru nefnilega ekki margir W201 eftir svona óslitnir :roll:


Sveinn

Re: Mercedes-Benz 190E 1992

#2
Mér finnst þetta geggjað flott eintak....svona púkalega flott. :P Var einmitt að spögulera í þessum þegar hann var auglýstur á dögunum. Kílómetrastaðan heillaði. En ég efast ekki um að þetta sé fínasti bíll fyrir Láru - og pabbi gamli eigi eftir að passa upp á það helsta í umhirðu bílsins meðan hún hefur hann í sinni eigu. :wink:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Mercedes-Benz 190E 1992

#4
JBV skrifaði:Mér finnst þetta geggjað flott eintak....svona púkalega flott. :P Var einmitt að spögulera í þessum þegar hann var auglýstur á dögunum. Kílómetrastaðan heillaði. En ég efast ekki um að þetta sé fínasti bíll fyrir Láru - og pabbi gamli eigi eftir að passa upp á það helsta í umhirðu bílsins meðan hún hefur hann í sinni eigu. :wink:
Takk fyrir það Jón :) Já, ég hugsaði málið þannig að þar sem pabbi gamli er hvort sem er dæmdur til að sjá um viðhaldið á bílnum sem hún fengi sér, þá fannst mér alveg eins gott að velja þetta sjálfur og hafa það þá bíl sem ég hefði áhuga á að viðhalda :wink:
Sveinn

Re: Mercedes-Benz 190E 1992

#6
Flottur óslitinn bíll, til hamingju með hann. Mér finnst vanta það sem máli skiptir í söguna, hvað finnst dótturinni um bílinn og þennan lit sem "allir" eru að tala um? :)
Garðar Lárusson
s. 892-0084

500SE 1989
280E 1980
290GD TDI 1987
280GE 1987

Re: Mercedes-Benz 190E 1992

#8
Lárusson skrifaði:Flottur óslitinn bíll, til hamingju með hann. Mér finnst vanta það sem máli skiptir í söguna, hvað finnst dótturinni um bílinn og þennan lit sem "allir" eru að tala um? :)
Stelpan er nú ekki mikið að velta útlitinu fyrir sér, held ég, enda ekki með sömu bíladelluna og pabbinn. Fegnust að þurfa ekki lengur að taka strætó og svona. Annars er verið að skipta um heddpakkningu núna þannig að hún er ekki komin með bílinn, en hún er mjög sátt við hann af myndum og spennt að fá hann.

Mér finnst þessi litur alveg í góðu lagi og á innréttingunni líka, en saman er þetta svolítið spes. Mestu finnst mér þó skipta að þetta virðist vera þéttur og góður bíll :wink:
Sveinn

Re: Mercedes-Benz 190E 1992

#10
Á 15" W201 áfelgur orginal undir þennan handa þér á 10 þús kall, svona eins og eru undir W126 hjá mér og voru á SEC num hjá þér ef mig minnir rétt :) (sama útlit en ekki breidd, er með orginal W201 felgur)

Annars finnst mér þetta gríðarlega fallegur bíll og innréttingin er bara kúl... ekta 80´s sem mér skilst að sé að komast í tísku aftur :)
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;