1977 280 SE
Sóttur í Breiðumýri í Reykjadal þar sem hann var búinn að standa í ca 15 ár, átti að vera nokkuð heilt eintak en þegar betur var að gáð höfðu íslenskir ryðbætingarsérfræðimeistarar komist í hann með trefjar, blikk, draghnoð og tektyl og valdið stórskemmdum.
Var búinn að raða vélinni saman en hana fékk ég sundurbútaða í fiskikari. Eftir kröftuga byrjun fann ég gamalt tjón/skekkju og guggnaði á honum en góðir menn töldu í mig kjarkinn og er allt komið á fullt.
Mikið af skurðarskífum, suðuvír og bodystáli, grunn og lakki farið í þennan auk þess sem keypt var tilbúið en úrval viðgerðastykkja í þessa bíla er frekar fátæklegt.
Nokkur handtök eru enn eftir en stefnt er á að hefja lakkvinnu Mai/jun.
Meðal annars:
Rétta hægri framgrind
Nýjan frambita
Nýja ytri sílsa
Nýja brettaboga H/V aftan og gera við innri brettin og grindina
Smíða upp innri sílsa og jackpoints
smíða upp botn og hvalbak
Bora innri bretti að framan af, ryðbæta og setja aftur á
Ný frambretti og skipta út 2 hurðum.
Þessa svakalegu ryðmyndun má mikið til skrifa á klúðurslegan frágang á þessum bílum auk þess sem heimamenn segja að MB hafi notað léleg efni í þá.
Hef verið slakur í að taka myndir en læt nokkrar flakka sem ég hef tekið á símann:
http://w116rustbucket.shutterfly.com/pictures/8
Ég hendi inn myndum eftir því sem á líður.
Mbk,
Hallmar.
Re: Enn ein W116 ryðhrúgan
#2Ánægður með þig, W116 er að hverfa af götunum
og því gott að einhver skuli nenna að bjarga þeim
Spurning hvað það var sem DB klikkaði á við framleiðslu á W116....
Væri gaman að sjá mynd af bílnum sjálfum eins og hann lítur út í dag.
Svo er spurning hvort að einhver af spekingunum þekki ekki til bílsins og geti sagt okkur einhverjar sögur af honum
Spurning hvað það var sem DB klikkaði á við framleiðslu á W116....
Væri gaman að sjá mynd af bílnum sjálfum eins og hann lítur út í dag.
Svo er spurning hvort að einhver af spekingunum þekki ekki til bílsins og geti sagt okkur einhverjar sögur af honum
Benedikt Hans Rúnarsson
Re: Enn ein W116 ryðhrúgan
#3Já þeir eru að hverfa, því miður. Ég er búinn að rífa niður 1 1/2 og fékk einn í bútum með, var ekki annað hægt en að klára þetta.
Ég skal taka fleiri myndir af honum. Númerið á honum var KC eitthvað, var lengi vel á Akureyri
Ég skal taka fleiri myndir af honum. Númerið á honum var KC eitthvað, var lengi vel á Akureyri
Re: Enn ein W116 ryðhrúgan
#4Væri gaman að sjá myndirnar birtar hérna á spjallinu, ef þú hefur tíma og "nennu" til þess. Hér má sjá ágætar leiðbeiningar til þess:
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=926" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=926" onclick="window.open(this.href);return false;
Benedikt Hans Rúnarsson
Re: Enn ein W116 ryðhrúgan
#5W116 er framleiddur til 1979, Þessi sömu ryðvandamál voru til staðar í W123 fram til 1979 þá eru gerðar breytingar á samsetningu innri frambretta og sílsa sem minnkuðu þetta vandamál umtalsvert. W116 hefði sjálfsagt fengið að njóta þessara beytinga hefði hann haldið áfram í framleiðslu.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com
600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000
tr105@outlook.com
600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000
Re: Enn ein W116 ryðhrúgan
#6Flott verkefni, eins og fram hefur komið er w116 að hverfa alveg, fáir eftir og bíð ég spenntur eftir myndum af bílnum að utan 
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71
Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG
BMW 735i e32 árg. 1989
Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222
http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND
Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG
BMW 735i e32 árg. 1989
Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222
http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND
Re: Enn ein W116 ryðhrúgan
#7W116 er í framleiðslu til september 1980.Sjá grein um 116.http://www.stjarna.is/is/mercedes-benz- ... s-lina-116" onclick="window.open(this.href);return false;Þröstur skrifaði:W116 er framleiddur til 1979, Þessi sömu ryðvandamál voru til staðar í W123 fram til 1979 þá eru gerðar breytingar á samsetningu innri frambretta og sílsa sem minnkuðu þetta vandamál umtalsvert. W116 hefði sjálfsagt fengið að njóta þessara beytinga hefði hann haldið áfram í framleiðslu.
Sigurbjörn H.
Re: Enn ein W116 ryðhrúgan
#8Ég hleð inn fleiri myndum um helgina. Bíllin var ryðbættur nokkuð um 1990 og var mest skemmdur í kring um þær "viðgerðir"