Enn ein W116 ryðhrúgan

#1
1977 280 SE
Sóttur í Breiðumýri í Reykjadal þar sem hann var búinn að standa í ca 15 ár, átti að vera nokkuð heilt eintak en þegar betur var að gáð höfðu íslenskir ryðbætingarsérfræðimeistarar komist í hann með trefjar, blikk, draghnoð og tektyl og valdið stórskemmdum.
Var búinn að raða vélinni saman en hana fékk ég sundurbútaða í fiskikari. Eftir kröftuga byrjun fann ég gamalt tjón/skekkju og guggnaði á honum en góðir menn töldu í mig kjarkinn og er allt komið á fullt.

Mikið af skurðarskífum, suðuvír og bodystáli, grunn og lakki farið í þennan auk þess sem keypt var tilbúið en úrval viðgerðastykkja í þessa bíla er frekar fátæklegt.
Nokkur handtök eru enn eftir en stefnt er á að hefja lakkvinnu Mai/jun.

Meðal annars:

Rétta hægri framgrind
Nýjan frambita
Nýja ytri sílsa
Nýja brettaboga H/V aftan og gera við innri brettin og grindina
Smíða upp innri sílsa og jackpoints
smíða upp botn og hvalbak
Bora innri bretti að framan af, ryðbæta og setja aftur á
Ný frambretti og skipta út 2 hurðum.

Þessa svakalegu ryðmyndun má mikið til skrifa á klúðurslegan frágang á þessum bílum auk þess sem heimamenn segja að MB hafi notað léleg efni í þá.

Hef verið slakur í að taka myndir en læt nokkrar flakka sem ég hef tekið á símann:
http://w116rustbucket.shutterfly.com/pictures/8

Ég hendi inn myndum eftir því sem á líður.

Mbk,
Hallmar.


Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

#2
Ánægður með þig, W116 er að hverfa af götunum :evil: og því gott að einhver skuli nenna að bjarga þeim :tumbsup2:
Spurning hvað það var sem DB klikkaði á við framleiðslu á W116.... :hmm:

Væri gaman að sjá mynd af bílnum sjálfum eins og hann lítur út í dag.
Svo er spurning hvort að einhver af spekingunum þekki ekki til bílsins og geti sagt okkur einhverjar sögur af honum :lol:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

#3
Já þeir eru að hverfa, því miður. Ég er búinn að rífa niður 1 1/2 og fékk einn í bútum með, var ekki annað hægt en að klára þetta.
Ég skal taka fleiri myndir af honum. Númerið á honum var KC eitthvað, var lengi vel á Akureyri

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

#5
W116 er framleiddur til 1979, Þessi sömu ryðvandamál voru til staðar í W123 fram til 1979 þá eru gerðar breytingar á samsetningu innri frambretta og sílsa sem minnkuðu þetta vandamál umtalsvert. W116 hefði sjálfsagt fengið að njóta þessara beytinga hefði hann haldið áfram í framleiðslu.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

#7
Þröstur skrifaði:W116 er framleiddur til 1979, Þessi sömu ryðvandamál voru til staðar í W123 fram til 1979 þá eru gerðar breytingar á samsetningu innri frambretta og sílsa sem minnkuðu þetta vandamál umtalsvert. W116 hefði sjálfsagt fengið að njóta þessara beytinga hefði hann haldið áfram í framleiðslu.
W116 er í framleiðslu til september 1980.Sjá grein um 116.http://www.stjarna.is/is/mercedes-benz- ... s-lina-116" onclick="window.open(this.href);return false;
Sigurbjörn H.
cron