Síða 1 af 1

Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 10 Apr 2012, 20:36
frá grill
1977 280 SE
Sóttur í Breiðumýri í Reykjadal þar sem hann var búinn að standa í ca 15 ár, átti að vera nokkuð heilt eintak en þegar betur var að gáð höfðu íslenskir ryðbætingarsérfræðimeistarar komist í hann með trefjar, blikk, draghnoð og tektyl og valdið stórskemmdum.
Var búinn að raða vélinni saman en hana fékk ég sundurbútaða í fiskikari. Eftir kröftuga byrjun fann ég gamalt tjón/skekkju og guggnaði á honum en góðir menn töldu í mig kjarkinn og er allt komið á fullt.

Mikið af skurðarskífum, suðuvír og bodystáli, grunn og lakki farið í þennan auk þess sem keypt var tilbúið en úrval viðgerðastykkja í þessa bíla er frekar fátæklegt.
Nokkur handtök eru enn eftir en stefnt er á að hefja lakkvinnu Mai/jun.

Meðal annars:

Rétta hægri framgrind
Nýjan frambita
Nýja ytri sílsa
Nýja brettaboga H/V aftan og gera við innri brettin og grindina
Smíða upp innri sílsa og jackpoints
smíða upp botn og hvalbak
Bora innri bretti að framan af, ryðbæta og setja aftur á
Ný frambretti og skipta út 2 hurðum.

Þessa svakalegu ryðmyndun má mikið til skrifa á klúðurslegan frágang á þessum bílum auk þess sem heimamenn segja að MB hafi notað léleg efni í þá.

Hef verið slakur í að taka myndir en læt nokkrar flakka sem ég hef tekið á símann:
http://w116rustbucket.shutterfly.com/pictures/8

Ég hendi inn myndum eftir því sem á líður.

Mbk,
Hallmar.

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 10 Apr 2012, 22:58
frá Benni
Ánægður með þig, W116 er að hverfa af götunum :evil: og því gott að einhver skuli nenna að bjarga þeim :tumbsup2:
Spurning hvað það var sem DB klikkaði á við framleiðslu á W116.... :hmm:

Væri gaman að sjá mynd af bílnum sjálfum eins og hann lítur út í dag.
Svo er spurning hvort að einhver af spekingunum þekki ekki til bílsins og geti sagt okkur einhverjar sögur af honum :lol:

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 10 Apr 2012, 23:39
frá grill
Já þeir eru að hverfa, því miður. Ég er búinn að rífa niður 1 1/2 og fékk einn í bútum með, var ekki annað hægt en að klára þetta.
Ég skal taka fleiri myndir af honum. Númerið á honum var KC eitthvað, var lengi vel á Akureyri

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 10 Apr 2012, 23:48
frá Benni
Væri gaman að sjá myndirnar birtar hérna á spjallinu, ef þú hefur tíma og "nennu" til þess. Hér má sjá ágætar leiðbeiningar til þess:
http://www.stjarna.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=926" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 11 Apr 2012, 00:26
frá Þröstur
W116 er framleiddur til 1979, Þessi sömu ryðvandamál voru til staðar í W123 fram til 1979 þá eru gerðar breytingar á samsetningu innri frambretta og sílsa sem minnkuðu þetta vandamál umtalsvert. W116 hefði sjálfsagt fengið að njóta þessara beytinga hefði hann haldið áfram í framleiðslu.

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 17 Apr 2012, 22:41
frá gmg
Flott verkefni, eins og fram hefur komið er w116 að hverfa alveg, fáir eftir og bíð ég spenntur eftir myndum af bílnum að utan :tumbsup2:

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 22 Apr 2012, 10:23
frá Benz
Þröstur skrifaði:W116 er framleiddur til 1979, Þessi sömu ryðvandamál voru til staðar í W123 fram til 1979 þá eru gerðar breytingar á samsetningu innri frambretta og sílsa sem minnkuðu þetta vandamál umtalsvert. W116 hefði sjálfsagt fengið að njóta þessara beytinga hefði hann haldið áfram í framleiðslu.
W116 er í framleiðslu til september 1980.Sjá grein um 116.http://www.stjarna.is/is/mercedes-benz- ... s-lina-116" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Enn ein W116 ryðhrúgan

Innsent: 25 Apr 2012, 22:57
frá grill
Ég hleð inn fleiri myndum um helgina. Bíllin var ryðbættur nokkuð um 1990 og var mest skemmdur í kring um þær "viðgerðir"