Re: Mercedes-Benz 320 CE Sportline [Nýjar Myndir]

#31
Kominn með 18" AMG monoblock undir og svo fæ ég hann aftur frá Nesradío á morgun þar sem það er verið að skipta um framhátalara og fleira.

[img]http://c1.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 331258.jpg[/img]

[img]http://c2.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 225c0d.jpg[/img]

[img]http://c2.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 57304d.jpg[/img]

Kv.


Gunnar Smári s.866-8282

Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]

Re: Mercedes-Benz 320 CE Sportline [Nýjar Myndir]

#35
Björgvin skrifaði:haltu honum orginal eins og hann er og þá ertu í bestu málunum.... vona svo innilega að þú kaupir ekki þessi hroðalegu ljótu "glæru" framljós með slétta glerinu og ALLS EKKI samlita hann alveg gráan... Halda honum orginal og þá er hann langflottastur....

Þetta er æðislegur bíll eins og hann er og má ekki fara að breyta honum í einhvern tyrkjabúðing :)

kveðja
Það er bara svo einfallt að glæru framljósin eru töluvert flottari, ná alveg nokkrum árum af bílnum.
Hinsvegar á pre-facelift finnst mér möttu ljósin betri vegna þess að allur bíllinn er með eldra útliti. Eins og þegar ég setti þetta á 200E bílinn hjá mér (prefacelift plast utan um ljósin en facelift inní ljósinu!!)
http://www.simnet.is/hlynzi/ljos/IMG_0007.JPG" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.simnet.is/hlynzi/ljos/IMG_0009.JPG" onclick="window.open(this.href);return false;


[img]http://www.w124club.com/cgi-bin/aisyabb ... 093600.jpg[/img]

http://www.simnet.is/hlynzi/benz/DSC01406.JPG" onclick="window.open(this.href);return false;
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

Re: Mercedes-Benz 320 CE Sportline

#36
Update 13. september 2010.

Margt búið að gera síðan ég update-aði síðast þráðinn. Ég seldi þessar 18" AMG fljótlega og fékk 16" Megawheels uppí. Svo seldi ég 16" orginal felgurnar svo hann stendur í dag á 16" Megawheels.

Svo mánudaginn fyrir nákvæmlega 3 vikum lét ég bílinn í tjékk hjá DogC því hann var alltaf að snuða inn í 3. gírinn og hafði gert alveg síðan ég keyrði hann fyrst. Kom í ljós að 3. gírinn var alveg útbrunninn og þurfti að taka upp skiptinguna alveg. Síðan var tölunni 350-500þús hent í mig og sagt að það væri líklega verðið á upptektinni.

Ég var ekki alveg að kyngja þeirri tölu og rakst þá á auglýsingu hér á spjallinu. Var það Einar nokkur og var að taka upp skiptingar. Hængurinn var sá að hann var staðsettur á Akureyri.

Eftir að hafa fengið mjög góða tölu frá Einari fórum ég og pabbi þá í það að taka skiptinguna undan. Komum henni að lokum með síðasta bíl til AK á föstudeginum. Var hún komin á borðið hjá Einari á mánudagsmorguninn. Hann var með hana frá mánudegi til föstudags og sendi hana með síðasta bíl til RVK á föstudeginum næsta. Náði ég svo í hana mánudagsmorguninn.

Skiptingin var sett undir miðvikudaginn 8. sept. Pústið var soðið saman en það var farið alveg í sundur á einum stað. Er þetta aðeins bráðabirgða því á næstu vikum verður smíðað undir hann pústkerfi þar sem miðjukútur og hvarfakútur verða fjarlægðir.

Síðan pantaði ég tíma hjá DogC síðasta föstudag og var skiptingin stillt og fleira. Bíllinn var sóttur í dag, 13. september, og er loksins kominn aftur á götuna. Svo ber að nefna það að fyrri eigandinn á þakkir skilið fyrir virkann þátt í kostnaðinum.

Það sem hefur verið gert síðan síðast:
- Sett original Drifskaptsupphengja.
- Nýr sviss (Sett í hjá DogC)
- Púst soðið.
- Ný olía á skiptingu.
- Plast í grilli málað.
- Ný Michelin 205/55R16 naglasekk keypt.
- Nýtt loftnet og nýjir Alpine type G afturhátalarar frá Nesradío.

Það sem er í pöntun:
- Ný spyrna með spindli (USA-týpan).
- Balancestangarfóðringar.
- Gúmmi milli skiptingar og drifskapts.
- Bremsuklossar.

Á döfinni á næstu vikum:
- Sérsmíðað pústkerfi.
- Xenon kerfi.
- 17" Monoblock.
- Betri myndir.
- Setja nr. 1 gúmmi í stað nr. 3 gúmmi á gormum.


Lélegar Myndir:

[img]http://c4.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 0d38b7.jpg[/img]

[img]http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... f4666a.jpg[/img]

[img]http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... fcd94a.jpg[/img]

[img]http://c2.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 67bcf9.jpg[/img]

[img]http://c4.ac-images.myspacecdn.com/imag ... b6e783.jpg[/img]

[img]http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 56da92.jpg[/img]

[img]http://c1.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 37d1f0.jpg[/img]

[img]http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 1020da.jpg[/img]


Með mun léttari buddu,,,
Seinast breytt af GunnarSmári þann 20 Sep 2010, 21:22, breytt 1 sinni alls.
Gunnar Smári s.866-8282

Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]

Re: Mercedes-Benz 320 CE Sportline [Update Bls.3]

#40
Jæja,

Þá eru 17" AMG Monoblock Replica komnar undir og lúkkar þetta mun betur. Held ég haldi mig við þessar fram á næsta sumar og reyni þá að finna mér 18".

Ég þarf að láta sjóða smá í eina, ekkert stórmál. Finnst liturinn svolítið skrýtinn, hann er bara grár eins og bíllinn, en langar að láta mála/húða þær í aðeins öðruvísi lit. Efast um að buddan leyfi það núna, en maður veit aldrei hvað maður getur kreist fram í vetur.

Myndir bráðlega!

Mbk.
Gunnar Smári s.866-8282

Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]