Sælir félagar,
Eftir að ég seldi 230CE minn þá hef ég verið í stökustu vandræðum með að finna mér bíl.
Var búinn að vera að skoða alltof mikið af bílum alveg frá E30 haugum yfir í ameríska. Það var þó ekki fyrren ég rakst á litla auglýsingu á Barnalandi sem eitthvað fór að gerast.
Datt inná þennan Mercedes Benz 320 CE Sportline 1994 módel skoðaði og prufukeyrði og gekk frá kaupunum strax.
Þetta er einn af fáum 320 CE sem eftir eru og er þetta svo stútfullur bíll af aukabúnaði. Ef þú værir að versla þennan bíl árið 1994 þá gætiru varla keypt dýrari svona CE nema kannski AMG version.
Sportline er eftirfarandi:
"The option package included sport seating, wider wheels and lower profile tyres, quick ratio steering, "Sportline" badges on the front wing moldings and gear knob, a slightly lowered ride height and a specially tuned suspension including shorter, stiffer springs, struts, anti-roll bars, and bushes."
Ég kaupi þennan bíl af manni í Mosó en er það greinilegt að það hefur alltaf verið hugsað vel um hann. Bíllinn er nefnilega fluttur inn 2003 frá Ítalíu en þar áttu íslensk hjón hann.
Eins og ég sagði þá er hann hlaðinn aukabúnaði.
Sportline
Leðurinnrétting.
Leðrað stýri.
Topplúga tvívirk.
ASD ( læst drif ).
Rafmagn í öllum rúðum.
Rafmagn í sætum.
Rafmagn í speglum.
Rafmagn í höfuðpúðum.
Rafmagnsniðurfelling á höfuðpúðum afturí.
Rafmagnsloftnet.
Fjarstýrðar samlæsingar.
Loftpúðastilling í bílstjórasæti.
Loftkæling.
Armpúði frammí og afturí.
SRS loftpúðar.
Hiti í sætum.
Samlitað plast í stuðurum.
Dökk afturljós.
Símastandur.
2 magnarar fyrir hátalara.
O.fl o.fl
Bíllin með 3.2 L vél sem er 6 cyl og 24V sem skilar 220 hestöflum. Hann er gefinn 7.8 sec í hundraðið og heldur áfram upp í 235 km/h. Svo er hann með 5 gíra sjálfskiptingu.
Vélin er alveg gríðarlega þétt og góð og vinnur mjög vel. Það er einnig varla að sjá nokkurn skít í vélarsalnum, sem mér finnst mjög gott.
Hann er ekki alveg fullkominn enda er það frekar erfitt en það sem ég sé að honum er miðjukútur lekur eitthvað og svo er eitthvað smá ryð í hurðafalsinu og öðru frambrettinu en það er verulega lítið og ég tók ekki eftir því fyrr en maðurinn benti mér á það. Svo er topplúgan eitthvað stíf að fara afturábak. Hann er með endurskoðun út á stýrirenda og ballansstangarfóðringu en maðurinn ætlar að panta varahlutina og borga viðgerðina og skoðunina þannig það er bara flott mál.
Svo er það bara klassíska vesen með rafmagnsloftnetið sem er í þessum bílum. Ætla að láta gera við það í þetta skipti.
Innréttingin er mjög góð og sama að segja um lakkið en það er nýlega málað húddið og þakið. Hann er svo Facelift.
Plönin:
[X] Xenon 6000K.
[X] 17"-18" AMG felgur.
[ ] Laga þetta litla ryð.
[X] Mála plast í grilli svart.
[X] Pústkerfi.
[ ] Finna Avantgaard grill þegar ég fer til DE í haust.
[X] Kaupa nýja hátalara frammí og tengja þá sem eru afturí.
[ ] Glær facelift framljós.
[X] Mýkja upp topplúguna.
[ ] Samlita bílinn alveg (næsta sumar).
[ ] Skipta um bremsuklossa og diska að framan.
[X] Skipta um sviss.
[X] Taka upp skiptingu.
Myndir! 28. júlí 2010
[img]http://img180.imageshack.us/img180/233/ ... ine019.jpg[/img]
[img]http://img225.imageshack.us/img225/8756 ... ine011.jpg[/img]
[img]http://img130.imageshack.us/img130/1764 ... ine013.jpg[/img]
[img]http://img812.imageshack.us/img812/4581 ... ine015.jpg[/img]
[img]http://img843.imageshack.us/img843/3782 ... ine022.jpg[/img]
[img]http://img716.imageshack.us/img716/2636 ... ine023.jpg[/img]
[img]http://img441.imageshack.us/img441/3374 ... ine027.jpg[/img]
[img]http://img266.imageshack.us/img266/3084 ... ine028.jpg[/img]
[img]http://img832.imageshack.us/img832/8101 ... ine030.jpg[/img]
[img]http://img44.imageshack.us/img44/1500/3 ... ine033.jpg[/img]
[img]http://img809.imageshack.us/img809/2139 ... ine034.jpg[/img]
[img]http://img27.imageshack.us/img27/5149/3 ... 037.jpgvvv[/img]
Eitt af mínu uppáhaldi, græja sem stillir loftpúða sem halda við bakið.
[img]http://img706.imageshack.us/img706/4461 ... ine039.jpg[/img]
[img]http://img441.imageshack.us/img441/7651 ... ine043.jpg[/img]
[img]http://img42.imageshack.us/img42/8914/3 ... ine045.jpg[/img]
[img]http://img820.imageshack.us/img820/2725 ... ine047.jpg[/img]
[img]http://img820.imageshack.us/img820/3373 ... ine021.jpg[/img]
Kveðja, einn sáttur með draumabílinn.
Gunnar Smári.
Mercedes-Benz 320 CE Sportline [Kveðjustund..]
#1Seinast breytt af GunnarSmári þann 10 Júl 2011, 22:33, breytt 22 sinnum alls.
Gunnar Smári s.866-8282
Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]
Mercedes-Benz E 220 '95
Mercedes-Benz CLK 320 '99 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz C 220 '98 Elegance [Seldur]
Mercedes-Benz 320 CE '94 Sportline [Seldur]
Mercedes-Benz 230 CE '91 [Seldur]