Update 13. september 2010.
Margt búið að gera síðan ég update-aði síðast þráðinn. Ég seldi þessar 18" AMG fljótlega og fékk 16" Megawheels uppí. Svo seldi ég 16" orginal felgurnar svo hann stendur í dag á 16" Megawheels.
Svo mánudaginn fyrir nákvæmlega 3 vikum lét ég bílinn í tjékk hjá DogC því hann var alltaf að snuða inn í 3. gírinn og hafði gert alveg síðan ég keyrði hann fyrst. Kom í ljós að 3. gírinn var alveg útbrunninn og þurfti að taka upp skiptinguna alveg. Síðan var tölunni 350-500þús hent í mig og sagt að það væri líklega verðið á upptektinni.
Ég var ekki alveg að kyngja þeirri tölu og rakst þá á auglýsingu hér á spjallinu. Var það Einar nokkur og var að taka upp skiptingar. Hængurinn var sá að hann var staðsettur á Akureyri.
Eftir að hafa fengið mjög góða tölu frá Einari fórum ég og pabbi þá í það að taka skiptinguna undan. Komum henni að lokum með síðasta bíl til AK á föstudeginum. Var hún komin á borðið hjá Einari á mánudagsmorguninn. Hann var með hana frá mánudegi til föstudags og sendi hana með síðasta bíl til RVK á föstudeginum næsta. Náði ég svo í hana mánudagsmorguninn.
Skiptingin var sett undir miðvikudaginn 8. sept. Pústið var soðið saman en það var farið alveg í sundur á einum stað. Er þetta aðeins bráðabirgða því á næstu vikum verður smíðað undir hann pústkerfi þar sem miðjukútur og hvarfakútur verða fjarlægðir.
Síðan pantaði ég tíma hjá DogC síðasta föstudag og var skiptingin stillt og fleira. Bíllinn var sóttur í dag, 13. september, og er loksins kominn aftur á götuna. Svo ber að nefna það að fyrri eigandinn á þakkir skilið fyrir virkann þátt í kostnaðinum.
Það sem hefur verið gert síðan síðast:
- Sett original Drifskaptsupphengja.
- Nýr sviss (Sett í hjá DogC)
- Púst soðið.
- Ný olía á skiptingu.
- Plast í grilli málað.
- Ný Michelin 205/55R16 naglasekk keypt.
- Nýtt loftnet og nýjir Alpine type G afturhátalarar frá Nesradío.
Það sem er í pöntun:
- Ný spyrna með spindli (USA-týpan).
- Balancestangarfóðringar.
- Gúmmi milli skiptingar og drifskapts.
- Bremsuklossar.
Á döfinni á næstu vikum:
- Sérsmíðað pústkerfi.
- Xenon kerfi.
- 17" Monoblock.
- Betri myndir.
- Setja nr. 1 gúmmi í stað nr. 3 gúmmi á gormum.
Lélegar Myndir:
[img]
http://c4.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 0d38b7.jpg[/img]
[img]
http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... f4666a.jpg[/img]
[img]
http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... fcd94a.jpg[/img]
[img]
http://c2.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 67bcf9.jpg[/img]
[img]
http://c4.ac-images.myspacecdn.com/imag ... b6e783.jpg[/img]
[img]
http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 56da92.jpg[/img]
[img]
http://c1.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 37d1f0.jpg[/img]
[img]
http://c3.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 1020da.jpg[/img]
Með mun léttari buddu,,,