Re: W201 190E 1992

#21
FatBoy skrifaði:
Ásgeir Örn skrifaði:Ef hann er eða tala um að þetta sé 205/55 þá finnst mér líklegast að þetta sé r16 en ekki r15. Ég held að bíllinn væri flottastur eins og hann á að vera upprunalega á 185/65r15 eða á 205/55r16, ég er sjálfur með 195 og mér finnst það aðeins of belgmikið.
Gott að þið fóruð að velta þessu svona mikið fyrir ykkur, nú rifjast þetta allt upp fyrir mér. 15" var það klárlega.

Sportline kom á þessum árum með 15x7"felgum og á þeim 205/55 R 15 87 H.
Frábært að keyra hann á því.

Og hananú - þannig var það og ekki öðru vísi :P
Þetta passar. 195/65-15 og 205/60-15 (Sportline) eru svo stærðirnar á W124. 205/55-16 smellpassar undir W124, þannig að ég færi í 205/50 í 16" undir W201.


Logi Sigurjónsson

Re: W201 190E 1992

#23
Takk fyrir Sveinn og Sergio. Mælaborðið er svart en sætin eru eins og í 220TE sem ég seldi til Höskuldar.

Ég þakka ykkur mikið vel fyrir þessa dekkja/felgu umræðuna. Þar sem ég er mikið að pæla í hvaða dekkjastærð ég eigi að fá mér. Vegna þess að felgurnar verða 15" þá verð ég að miða dekkjastærðina út frá því. Ég held að 205/55 R 15 87 H verði fyrir valinu ef mið er tekin af myndinni og upplýsingum frá "Fatboy".
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#24
Þetta er fallegur bíll og á bara eftir að batna sé tekið mið af forsögu eigandans. Verður gaman að fylgjast með þessum. Áttu myndir af innviðum ? (Hver þarf hvarfakúta????)

Kv, Geir.

Re: W201 190E 1992

#25
spjot skrifaði:Þetta er fallegur bíll og á bara eftir að batna sé tekið mið af forsögu eigandans. Verður gaman að fylgjast með þessum. Áttu myndir af innviðum ? (Hver þarf hvarfakúta????)

Kv, Geir.
Takk fyrir Geir. Það stendur til að byrta myndar innan úr bílnum - bara ekki komið því í verk ennþá að taka þær. Varðandi svigaspurninguna, þá er þetta eitthvert regluverk gert af einhverjum hverúlöntunum innan ESB. :?
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#27
Shiii, bara fyrir forvitnis sakir fletti ég upp hvað þessi dekk kosta... :shock:
Eini staðurinn sem við eigum viðskipti við hjá Vöku sem á þetta er Sólning og þar kosta þessi dekk 27.200 kr. stk.. Þá er það heilsársdekk.
Ásgeir Örn Arnarson
S: 8460963

M.Benz E420 '93 sportline "AMG"
M.Benz 190e 3.0 twinturbo '89 bsk sportline
M.Benz 190e 2.0 '91 - seldur
M.Benz 300ce '88 - seldur
M.Benz 280se '83 - seldur
M.Benz 230e '83 - seldur

Re: W201 190E 1992

#29
Takk fyrir Hjalti og Teddi. :)
Maður verður að prófa C-flokkinn líka Teddi. Á einnig eftir S-deildina. :wink:

Já Ásgeir - ég hef aðeins verið að kynna mér verð á dekkjum, m.a. þessum, og þau eru sko ekki "gefins" í dag. :?
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#30
alveg fór þetta framhjá mér !

Til lukku með þetta Jón Birgir ;)

Ég kannast nú við þennan bíl, Guðmundur Ásgeir átti hann.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin