W201 190E 1992

#1
Þá lét maður verða af því að fá sér W201 Benz. Fyrir valinu varð gríðarlega gott Sportline eintak sem ég keypti af bílasölunni Bílalíf - og hafði staðið þar um nokkra hríð. Bíllinn er ekinn 209.xxx km.

Þessi Benz má teljast svo gott sem ryðlaus á boddy-i og undirvagni - enda innfluttur í kringum 2000 þ.a.l. laus við saltpækilinn fyrstu 8-9 árin. Einhverjar hagkaupsskellur eru á bílnum og sumstaðar nokkuð áberandi. T.d. er ein slík dæld á grillrammanum og þarf ég að verða mér út um einn slíkan. Til stendur að bæta úr öðrum boddydældum með vorinu. Vélin er 2 lítra sem skilar einhverjum 122 hestöflum. Við fyrstu kynni virðist hún vera í fínu lagi ásamt skiptingunni. En þess má einnig geta að áður en ég keypti bílinn, þá fór ég með hann í söluskoðunn til Bíladoktorsins. Mæli með svoleiðis skoðun hjá þeim.
[img]http://img694.imageshack.us/img694/5900 ... easpx2.jpg[/img]
Það sem var brýnast að gera eftir að kaupinn voru genginn í gegn. Var að fara með bílinn í smur- og síuskipti, fá nýjan geymi (þar sem sá gamli var of lítill aðeins 50amp), vetrardekk og nýjar framljósaperur. Einnig er búið að smíða varalykil, þar sem einungis einn lykill fylgdi.
[img]http://img694.imageshack.us/img694/2653/11122009sp.jpg[/img]
Á morgun fær Benzinn nýjan endakút hjá Ás pústþjónustu í Nóatúni, þar sem aftasta kútinn vantar. Þá er ætlunin að setja undir hann 15" álskífur í vikunni. Að endingu fer sá rauði í smá ditterí hjá Bíladoktornum - þar sem lásinn í bílstjórahurðinni verður lagaður (ekki hægt að læsa utanfrá með lykli), skipt um bremsuvökva og litið á stýrisupphengju. Þá þarf ég að verða mér út um útvarp þar sem hinu var stolið úr honum á bílasölunni. Annars er ég bara nokkuð sáttur með þetta eintak og kem vonandi til með að eiga hann í einhvern tíma.


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#3
gmg skrifaði:Til lukku, ég er alltaf mjög hrifinn af w201, finnst þetta flott hönnun 8)
Takk Gunnar. Sammála með hönnunina. Þessi týpa er búin að vera á óskalistanum mínum í nokkur ár. Átti ekki von á því að úr rættist svona fljótt, þar sem ég átti góðan bíl fyrir sem ég ætlaði ekkert endilega að selja strax. En þar sem salan á 220TE kom nokkuð óvænt upp - og gekk greiðlega fyrir sig. Þá var ekkert annað að gera en að skima í kringum sig eftir góðu eintaki af w201. Og niður á þennan mola datt ég. :D
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#5
Killerboot skrifaði:Til lukku með gripinn.

Þessi bíll var í nærsveitum Akraness fyrir ekki svo löngu, getur verið að síðasti eigandi heiti Ásgeir.
Takk fyrir - Ja Bílalíf var skráður eigandi síðast en þar á undan minnir mig að Ásgeir hafi átt hann.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#8
Flottur litur
Þessi litur kemur mjög vel út vel bónaður,gott að þessi er kominn í dekur hendur :D
á til álskífur á þennan ef þig langar í,á spottprís,svokallaðar Avantgarde look, hafðu samband ef áhugi
kv Gummi
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO
cron