Re: W201 190E 1992

#31
Ásgeir Yngvi skrifaði:alveg fór þetta framhjá mér !

Til lukku með þetta Jón Birgir ;)

Ég kannast nú við þennan bíl, Guðmundur Ásgeir átti hann.
Takk fyrir Ásgeir Yngvi. :) Hef í sjálfu sér ekki mikið verið að flíka þessum fyrir utan þennan þráð sem ég stofnaði til - þar sem eitt og annað þarf að komast í stand áður en hann kemur fyrir almanna sjónir. Þar ber fyrst að telja endurnýjun á sjálfskiptingu þar sem bandið fyrir bakkgírinn er farinn í henni ásamt einhverju fl. :? En bíllinn er góður vélar- og boddýlega séð. Hvenær átti Guðmundur Ásgeir bílinn?


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#32
JBV skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:alveg fór þetta framhjá mér !

Til lukku með þetta Jón Birgir ;)

Ég kannast nú við þennan bíl, Guðmundur Ásgeir átti hann.
Takk fyrir Ásgeir Yngvi. :) Hef í sjálfu sér ekki mikið verið að flíka þessum fyrir utan þennan þráð sem ég stofnaði til - þar sem eitt og annað þarf að komast í stand áður en hann kemur fyrir almanna sjónir. Þar ber fyrst að telja endurnýjun á sjálfskiptingu þar sem bandið fyrir bakkgírinn er farinn í henni ásamt einhverju fl. :? En bíllinn er góður vélar- og boddýlega séð. Hvenær átti Guðmundur Ásgeir bílinn?
umm ég er ekki viss.... ekkert svo langt síðan hann átti bílinn... gæti trúað að það sé svona ár síðan.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: W201 190E 1992

#33
Flottur bíll - sérstaklega liturinn. Fer varla á milli mála að W201 er fyrirmyndin að W124 (nema þá að báðir hafi verið samtímis á teikniborðinu og lúrt hafi verið á þeim síðarnefnda í tvö ár).
Kveðja,
Sveinn Arnar.
Mercedes-Benz 280SE 1984
Mercedes-Benz 250D turbo 1992
Mercedes-Benz E300 turbo diesel 1999
Mercedes-Benz C180 Elegance 2001 Seldur

Re: W201 190E 1992

#34
Það er orðið nokkuð um liðið síðan síðast var póstað inn einhverju um gang mála á þessum Benz. Liðið er eitt ár og einn mánuður síðan undirritaður keypti hann. Það sem hefur verið gert við gripinn á þeim tíma, er eitt og annað eins og ver að ber þegar bifreið fast að tvítugu á í hlut. Þótt bíllinn þætti góður á skrokkinn og vélbúnað við fyrstu skoðun, þá kom ýmislegt í ljós sem betur mátti fara til þess að þetta gæti talist eigulegur vagn.

Það liðu ekki nema tveir mánuðir frá kaupum, þegar bakkgírsbandið fór í kassanum - og þótti fróðum mönnum að skinsamlegast væri að festa kaup á "nýrri" sjálfskiptingu heldur en að gera við þá sem fyrir var. Á vor mánuðum s.l. keypti undirritaður svo annan w201 Benz í "slátur". Sá Benz var sérdeilis heill og flestir partar og íhlutir í góðu ásigkomilagi, þar með talin sjálfskiptingin. Slátur-Benzinn stóð í skúrnum allt sumarið meðan mjatlaðir voru úr honum hlutir fyrir þann rauða, sem og aðra þá sem áhuga höfðu á varahlutum úr honum.

Það sem nýtt var úr slátur-Benzinum og sett í rauða Benzinn var eftirfarandi:
*Sjálfskipting sem var ekin 201.700 km. og er alveg hnökralaus í akstri. Bíla-doktorinn sá um skiptin.
*Grillið (það gamla var dældað og plastið í því brotið). Hlynzi málaði plastið svo í desember s.l.
*Pioneer tæki. Hlynzi sá um ísetningu.
*Nýleg 15" sumardekk á álfelgum.
*Öxull v/m aftan. Ísetning, Bíla-doktorinn.
*Slanga/hosa milli sogreinar og spjaldhússins
*Inniljós/öryggisbeltaljós/topplúgurofi (sambyggt unit).
*Miðstöðvarmótor.
*Gúmmíhulsa utan um stútinn í bensíntankinn (hin var orðin fúin þannig að skottið angaði allt áður við áfyllingu).
*Viðvörunarþríhyrningur inn í skottlokið (vantaði áður).

*Bremsudiskar að aftan (nánast nýir) júní 2011

Auk þess hefur verið skipt um/keypt:
*Allt pústkerfið (kvarfakúttnum sleppt). Pústverkstæðið Ás.
*Nýr rafgeymir. N1.
*Nýjar aðalljósaperur. N1.
*Óslitin 15" vetrardekk. GMG.
*15" Avantgardefelgur. GUMMCO. (miðjugöt í felgum víkkuð/rennd hjá Renniverkstæði Árna, fyrir felgumiðjur).
*Felgumiðjur. Askja
*Bremsuklossar
*Drifskaftsupphengja. Bíla-doktorinn
*Nýir stólpúðar. Bíla-doktorinn
*Hjólalega v/m framan. Bíla-doktorinn
*Ný kol í altenator. Bíla-doktorinn
*Nýir Bosh kertaþræðir. Bíla-doktorinn *edit 3.mars 2011*
*Heddið planað 25. mars 2011 (þá ekinn 219.xxx km.) (Þröstur sá um aðgerðina)
*Nýtt slípisett (heddpakkning frá Kistufelli)
*Ný bensíndæla og sía. Bíla-doktorinn
*Ný Mercedes-Benz kerti. Askja
*Ný slanga/hosa milli sogreinar og spjaldhús. Askja
*Ný gúmmíhulsa neðan á spjaldhúsið. Askja
*Innspýtingarhaus. Vaka (Ásgeir Örn)
*Nýir bremsuklossar að aftan. N1 (júní 2011)
*Ný spindilkúla v/m. Bíla-doktorinn. (ágúst 2011)



Tjékklistinn yfir það sem átti og á að gera, er nokkuð langt kominn. En það sem er einna helst á stefnuskránni er að setja í bílinn fjarstýrðar samlæsingar. En unitið er til úr partabílnum. Laga þetta týpíska slit á bílstjórasæti. Útlitslagfæringar, eins og hagkaupsdældir og rispur verða látnar bíða um sinn. Í dag er bíllinn ekinn 218.600 km. Rann athugasemdalaust í gegn um skoðun þann 3. janúar.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: W201 190E 1992

#36
Þetta er skemtilegt hjá þér Jón Birgir, einmitt gaman að horfa aðeins um öxl og sjá hvað hefur gerst í svona verkefnum :tumbsup:
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk