Takk fyrir það
Já þetta ætlar sannarlega að vera jákvætt í alla staði með bílinn, ég er með þeim erfiðari
þegar kemur að meðhöndlun á lakki. Skolaði af honum áðan og ég trúði varla hversu gott
það er. Glansinn er á við nýtt lakk, allt að innan er í svipuðum dúr.. Allavega hafa þeir
tveir eigendur sem skráðir eru á hann verið mjög "meðvitaðir".
Annars ætlaði ég að setja AMG felgurnar undir áðan, náði í manualinn til að finna hvar
verkfærin væru falin, þau áttu að vera undir aftursætinu, en þar fann ég bassakeilu í
stað verkfæranna, væntanlega er magnari þar undir, einkar broslegt. Lá við að ég vildi
frekar verkfærin, en þetta verður bara þarna

Á reyndar eftir að tjékka inn í vara-
dekkið (sem hangir á afturhleranum).
Síðan var harman kardon IPOD module falið í stokknum á milli framsætanna,
öskubakkanum hefur verið skipt út og lítill skjár verið settur í staðinn. Þetta er allt mjög
vel frágengið. Sjálft "inletið" á öskubakkanum var í hanskahólfinu.
Mér sýnist líka pústkerfið vera mjög vel frágengið.. Hvort það sé Carlsson all the way veit
ég ekki.. Allavega hljómar þetta mjög vel, sérstaklega við inngjöf
Það sem stendur til að breyta bílnum, breiðari brettakannta og eitthvað smá bling..