#31
Jæja, biðin ætlar að verða svolítið löng...

Þetta er bókstaflega búið að ganga allt á afturfótunum.. Ég keypti AMG felgur á hann
sem voru sendar síðan á allt annan stað en þær áttu að fara. Eftir mikið stapp og vés þá
rötuðu þær loks í skottið.

Síðan þegar hann var kominn niður í höfn þá tókst einhverjum snillingnum að týna
titlinum þ.e. plaggið sem þarf til að koma honum úr landi. Þannig bíllinn tefst í um 2-3
vikur vegna þess..

Allar grindurnar eru komnar og þær líta vel út, er örugglega búinn að skoða allar myndir
af G-bílum sem google finnur...

Hinsvegar held ég fast í þá von að bíllinn sé góður og eigi eftir að sinna sínu.


G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

#32
Hriiiiiiiiikalega flottur bíll!! Þessir G bílar eru eitthvað svo töff.
Hlakka til að sjá hann á götunni. . . einhvern tíman. . . vonandi fljótlega

#33
Jæja eftir tæplega fjögurra mánaða bið er gripurinn komin á hafnarbakkann og ég kíkti
aðeins á hann áðan í fylgd her tollvarða :)

Hann er ekinn um 80 þús km. þannig ég bjóst nú ekki við að hann væri 100% en
merkilegt nokk þá var hann nánast eins og nýr bæði að utan..

Allar bækur, ný dekk, lakkið mjög gott, AMG felgurnar í honum.. en hann var svo lengi
á leiðinni að ég óttaðist að þær væru horfnar..

Skemmtilegast fannst mér að sjá Carlsson merkingar á öllu pústinu.. á eftir að skoða það
nánar. Nú er bara að bíða eftir afgreiðslu tollsins og þá er að skrá, bóna og henda felgunum undir...

Nú er hann skyggður allan hringinn af verksmiðju, á ég samt ekki von á því að fá fallegan
grænan miða á hann í skoðuninni?
G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

#34
Jæja til hamingju með að hafa fengið hann og jú ef þetta eru filmur þá færðu fallegan grænan miða
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#35
Thrullerinn skrifaði:Jæja eftir tæplega fjögurra mánaða bið er gripurinn komin á hafnarbakkann og ég kíkti
aðeins á hann áðan í fylgd her tollvarða :)

Hann er ekinn um 80 þús km. þannig ég bjóst nú ekki við að hann væri 100% en
merkilegt nokk þá var hann nánast eins og nýr bæði að utan..

Allar bækur, ný dekk, lakkið mjög gott, AMG felgurnar í honum.. en hann var svo lengi
á leiðinni að ég óttaðist að þær væru horfnar..

Skemmtilegast fannst mér að sjá Carlsson merkingar á öllu pústinu.. á eftir að skoða það
nánar. Nú er bara að bíða eftir afgreiðslu tollsins og þá er að skrá, bóna og henda felgunum undir...

Nú er hann skyggður allan hringinn af verksmiðju, á ég samt ekki von á því að fá fallegan
grænan miða á hann í skoðuninni?
Ekki ef þetta er litað gler 8), en ef það eru filmur þá færðu fallega grasgrænan miða á númerplöturnar :(
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

#36
hvar vex svona neongrænt gras 8)
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

#39
Jæja búinn að leysa út.. 8)

Ruglað hljóð í gripnum :shock:

Er hægt að setja kílómetralestur á mælaborðið handvirkt? þ.e. halda einhverjum takka inni?
Var hægt í porkinum, fékk nebblega endurskoðun vegna þess..
G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

#40
Thrullerinn skrifaði:Jæja búinn að leysa út.. 8)

Ruglað hljóð í gripnum :shock:

Er hægt að setja kílómetralestur á mælaborðið handvirkt? þ.e. halda einhverjum takka inni?
Var hægt í porkinum, fékk nebblega endurskoðun vegna þess..
Þetta er GEÐVEIKT TÆKI hjá þér. Væri gaman að sjá hann á næsta hittingi :wink:

Spurning hvort þú getur fengið "Eurokit" í svona bíl eins og hægt er að fá fyrir ML (og e.t.v. fleiri). "Eurokit" þýðir að settur er km mælir í bílinn í stað mílumælis eða eitthvað slíkt (þekki þetta ekki nógu vel...).
Askja eða Ræsir ættu að geta svarað því :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson