Re: G500 Nýjar myndir & metan !

#141
JBV skrifaði:Fróðlegur pistill, gott að fá svona innsýn í metan bíla menninguna. Takk fyrir Thrullerinn :tumbsup2:
Ég held að það þrengi að mörgum í þjóðfélaginu í dag, þrátt fyrir að fólk sé að þéna vel þá er merkilega lítið eftir í mánaðarlok. Ég var allavega ekki sáttur við 60-70 þús reikning bara fyrir fokkings bensíninu. Geldingin snerist meira um budgetið en umhverfisvæna þáttinn, myndi halda að það væri þannig hjá flestum sem fara út í þetta.

Nú þegar hefur metanið hækkað í 120kr. ef maður skoðar verðhækkanirnar síðustu árin þá hefur það hækkað talsvert í verði.

Væri skemmtilegra ef það væri samkeppni.

Eitt sem mér finnst alveg mega svekkjandi, það er endurgreiðslan á vsk-inum þar sem jeppinn er eldri en 6 ára þá fæ ég hann ekki endurgreiddan. Það er ansi kjánalegt í ljósi þess að G vagnar eru einir endingarmestu bílar á götunum. Finnst afar ólíklegt að þessi bíll endist skemur en (venjulegir) bílar sem framleiddir eru í dag. Það munar sko HELLINGS á þessari endurgreiðslu, í mínu tilviki 100 þús.


G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: G500 Nýjar myndir & metan !

#142
Mikil dramatík áðan, konan hringir og bíllinn fer varla áfram, eins og hann sé fastur í handbremsu og skiptir sér ótt og títt.

Lét hana resetta skiptinguna í gegnum símann, allskonar bras, prófa að aka honum manualt í 1-2, alltaf sama sagan.

Nú var bara að hringja á leigubíl og ég myndi kíkja á þetta síðar.

Samtalið endaði svona, síðan eftir nokkrar mínútur hringdi ég aftur til að spyrja hvort eitthvað læki af skiptingunni þá datt mér allt í einu í hug að hún væri með hann í lága, sem reyndist vera rétt.

Kvenfólk pfffffff :lol:

Af öðrum málum þá er metanið er að koma mjög vel út, keyrir flott á því.
G500 - 5.0L '03 Metanbreyttur
CARRERA4 911 964 - 3,6L '91
CHAPPARAL SSI 180 '04

Re: G500 Nýjar myndir & metan !

#143
Thrullerinn skrifaði:Mikil dramatík áðan, konan hringir og bíllinn fer varla áfram, eins og hann sé fastur í handbremsu og skiptir sér ótt og títt.

Lét hana resetta skiptinguna í gegnum símann, allskonar bras, prófa að aka honum manualt í 1-2, alltaf sama sagan.

Nú var bara að hringja á leigubíl og ég myndi kíkja á þetta síðar.

Samtalið endaði svona, síðan eftir nokkrar mínútur hringdi ég aftur til að spyrja hvort eitthvað læki af skiptingunni þá datt mér allt í einu í hug að hún væri með hann í lága, sem reyndist vera rétt.

Kvenfólk pfffffff :lol:

Af öðrum málum þá er metanið er að koma mjög vel út, keyrir flott á því.
hehehe, góð bilun.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is