#43
fráivar
ótrúlegt hvað verðlagning á einum benz getur valdið miklu fjaðrafoki,
í dag er ekki orðið sangjarnt að miða bara við það eitt hvað eitthvað annað eintak af sömu gerð seldist á, eins og t.d nefnir þórður A að hann hafi selt sinn á 120, þeir sem að sáu þann bíl vita hinsvegar að þar var um illa ljótt og ryðgað eintak að ræða, er það sá sangjarn samanburður?
það eru núna 25ár síðan þessir bílar komu, og 15 síðan þeir fóru af markaði, en vegna þess hversu einstaklega vandaðir þessir bílar eru, þá er ennþá haugur af þessu í umferð, bara á planinu fyrir framna blokkina mína eru 5stk, þar af einn sem er 85/86 árg.
þannig að eintökin sem eru þarna úti eru í dag orðin æði misjöfn af lífsvilja, og "melló-ið" er að verða 300þúsund km+, og því eru því miður langflest eintökin að verða ansi slöpp,
á akkurat tíma eins og núna þá fer fólk í mörgum tilfellum að hætta að nenna að gera þá út, og menn verða ennþá grimmari í að rífa þá bara, en heilli eintökin hinsvegar halda áfram að vera til, þetta verður svo til þess að ekki svo langt frá nútímanum þá verður alls ekki lengur svona mikið til af þeim, og þá fara eintökin sem eru góð a seljast á meiri pening heldur en þau bæði gerðu nokkrum árum fyrr, sem og verðmunurinn á milli bíla að aukast eftir ástandi,
svo má ekki gleyma að w124 og w124 er ekki það sama, á gömlum verðlista frá ræsir kostaði E420 rúmar 11 milljónir, og með aukabúnaði eins og leðri, hitastýrði miðstöð, rafmagn í öllu og flr var verðmiðinn kominn eflaust yfir 13m,
á sama tíma kostaði normal 4cyl bíll frá tæpum 5 milljónir, og 6cyl bíll á milli 6 og 7, og 500 bíll svo frá 17 milljónum,
þannig að það er ekki bara hægt a segja "w124.. já það gera 500kr"
þetta eru ólíkir bílar, og verðið á að ráðast meira af því hvaða eintak þú ert að skoða, og hvað það eintak hefur í plús eða mínus fram yfir önnur eintök,
maður sér þetta vel í þýskalandi, þar sem að tvö eintök af eins bílum eru að seljast á yfir 100% verðmun, vegna ástands, eða jafvel vegna þess að annar var með einhevrjum fídusum sem fólk sækist eftir,
þessi umræddi 300bíll dansar dáldið þunna línu þarna á milli, hann hefur ótvíræða kosti, eins og t.d eigendasögu? ástand og flr, en er svo óneitanlega viðbjóðslegur á litinn, og hevrjum datt eiginlega í hug að mála plastið í ððrum gylltum lit? ég hef sjaldan séð ljótari litasamsetningu á w124.
en bíllinn virðist afar heill, og ég er búinn að sjá hann með berum og hann virkar afar heill, og því er hann klárlega einhvers virði, og meira virði heldur en avarage eintakið sem er á ferðini,
ég fékk ágætis dæmi um þetta um daginn, þa hringdi aðili sem hafði ætlað að kaupa 400E bílin minn áður en ég keypti hann, hann var tilbúinn að borga mér minna fyrir hann heldur en eg borgaði sjálfur, þegar ég neitaði tilboðinu tilkynnti hann mér að þessi bíll væri bara ekki meira virði, frændi hans hafi keypt 420 bíl á einhverja X upphæð, auk þess sem að minn væri beyglaður,
hann var ekki að taka inn í dæmið að minn bíll væri með 500 conversion, og bara vinnan og efniskostnaður við að breyta normal bílnum yfir í það lúkk væri meiri en kaupverðið á bílnum sjálfum,
ég veit reyndar líka hvaða bíl frændi hans keypti, og hann gleymdi einnig að minnast á að sá bíll væri aukabúnaðalaus nanast, og hafði lent í stóru tjóni en svona er það bara alltaf með þessa sérfræðinga sem vita betur en maður sjálfur hvað maður er með í höndunum.
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur