Benni skrifaði:
Reyndar finnst mér persónulega miklu eðlilegra að umræða um verð á Mercedes-Benz sé staðsett hérna en inn í viðkomandi söluþræði. Menn geta sett það sem þeir vilja á bílana sína. Það er þá bara þeirra höfuðverkur ef þeir seljast ekki
Ef um er að ræða einstaklega gott eintak af bíl þá er ekkert óeðlilegt að verðmiðinn sé eftir því. Í þessu tilfelli væri bara allt í lagi að skoða gripinn áður en menn taka ákvörðun. Þessi tilgreindi bíll á 3 ár í fornbílaflokkinn og góðir fornbílar eru ekki "gefins"
Tek það einnig fram að ef menn hafa ákveðnar meiningar um eitthvað þá skulu þeir koma fram undir nafni.
Þörf ábending Benni. (samt lagast heilmikið)
Þessi litasamsetning er ekki sú sem margir mundu velja en kannski finnst kaupandi sem vill hafa bílana sína eins og hamborgarasósu á litinn. Hann fær bílinn á 450 þúsund og báðir aðilar sáttir.
Varðandi verð á ódýrum bílum þá kom Ásgeir Yngvi með klassískan punkt, framboð og eftirspurn. Hann var tilbúinn að kaupa varahlut sem erfitt er að fá nema að flytja inn fyrir formúgu plús áhættu með ástand.
Reyndar nóg til af gömlum bílum en kannski lítið af eintökum í þokkalega góðu ástandi og endingargóðir.
Mönnum blöskraði þegar gott eintak af 500E var auglýst á 2,5 milljón árið 2008, sjáum til hvað þessi fáu góðu eintök hér á landi kosta eftir 5-7 ár. Kannski hækka þeir seint á svona litlum markaði, kemur í ljós.
Björgvin skrifaði:
Þetta er náttúrulega bara BULL verð og að ætla að fara að bera saman verð á einhverjum innfluttum bíl miðað við gengið í dag er náttúrulega bara kjánalegt (sorry Benni) það er enginn heilvita maður að flytja inn bíla í dag... En verð á Benz er bara í ruglinu það er verið að reyna að pranga út einhverja verðlausa búðinga á 300 til 400 þús og svo þennan á 930 þús... Þetta nær engri átt....
Nú bíð ég bara spenntur eftir einum gullmola frá Tedda um þetta komment mitt hérna... Klikkar aldrei....
Svekktur út í þig Björgvin, verður að koma með eitthvað almennilegt til að skjóta niður.
Kaupið ykkur W124 eða td. '95-'99 Legacy sem fyrst, gæti orðið hin fínasta fjárfesting.