Re: W124 að hækka mikið í verði?

#11
Þórður A. skrifaði:En benni. Það er eingannveginn sangjarnt að bera saman verð á íslenskum bíl vs það að flytja bíl inn.

Getum með þeim rökum sagt að fullur ruslagámur sé nokkur hundruð þúsunda virði, ef maður myndi vilja kaupa hann á íslandi, á móti því að flytja hann inn...
Jú, mér finnst það bara alveg sanngjarnt ef um er að ræða einstaklega gott eintak eða safngrip. Við lifum í núinu ekki satt og gengið er ekkert að fara að lækka á næstunni.
Gamlir Benzar hafa ekkert lækkað í verði, jafnvel bara hækkað, og ýmsar druslur skyndilega orðnar dýrar :roll:

En er ekki að skilja þessa samlíkingu þína við ruslagám.... :?
Hverjum myndi detta það í hug - nema jú ef ruslagámurinn væru fullur af verðmætum :lol:

Tek það fram að ég hef ekkert skoðað þennan bíl - kannski að maður kíki bara á hann úr því að hann er hérna í nágrenni við minn vinnustað :wink:


Benedikt Hans Rúnarsson

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#12
sveinn skrifaði:En afhverju eru menn að spá í þessa verðlagningu? Þó að einhver verðleggi bílinn sinn útfrá öðrum viðmiðunarreglum, þá er það versta sem gerist að hann selur þá ekki bílinn! Kannski skipaði konan honum bara að selja bílinn og hann hlýddi :lol: Hver veit? :roll: ...annars er ég persónulega yfirleitt ekki að velta verði á bíl fyrir mér nema ég sé að hugsa um að kaupa hann. Og í því tilviki Þá ber ég bara verðlagninguna undir kaupandann, eða bara hreinlega sleppi því ef hún er þannig.

Er ekki eðlilegt að bílaáhugamenn ræði um verðlagningu á jafn merkum bíl á W124 er?
Ég spái í verð á ýmsum bílum dags daglega til að fylgjast með markaðnum, án þess að ég sé endilega að spá í kaup á viðkomandi bíl....

En þið megið endilega loka þessum þræði bara ef hann fer eitthvað í taugarnar á einhverjum.... Tilgangurinn var kannski að starta einhverri umræðu hvort góð eintök af gömlum merkilegum bílum séu að hoppa í verði, því ekki veitir af því að fríska upp á þetta leiðinlega spjallborð. Benz á skilið einhvern flottan vettvang einsog bmwkraftur.is
Árni S.

BMW 523 E39
M.Benz 200 W124

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#13
minn er til sölu skoh. og ég set á hann 2,2m og ef þið viljið ekki kaupann þá fokkoff bitsess.

nei ég er að djóka.. annars finnst mér bílar með söfnunargildi meiga allveg vera yfirverðsetti. eftir 10ár þá verður þetta bilar sem menn vilja borga vel fyrir.
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#14
Ég hef nú ekki verið að blanda mér mikið í þessa umræðu, mér hefur ekki fundist hún neitt sérstök, en varðandi verðlagningu á bílum og þá gömlum bílum þá hefur hún breyst talsvert eftir hrun !

Góðir E 30 BMW-ar eru á yfir milljón og 50 þúsund kr. bílar ( 2008 ) eru komnir í 300 + :shock:

Varðandi verð á þessum tiltekna 300 4 Matic sem að um er rætt, þá verð ég bara að fara að skoða hann til að tjá mig um það, ætla ekkert að setja út á þetta verð eða hvað viðkomandi keypti hann á, mér var reyndar sagt að hann væri búinn að heilsprauta hann o.fl. 8)

Þannig að ef að verðið er of hátt þá selst hann ekki !

Ég ætlaði sjálfur að selja minn w126 árg 1983 og setti á hann kr.750.000 og var búinn að bjóða hann á kr.550.000 stgr en enginn vildi, mér finnst það lágt verð en öðrum finnst það kannski hátt, þannig að ég er hættur við að selja ( gefa ) hann !

Svona er þessi markaður skrítinn, og að sjálfsögðu eigum við að ræða þessi verð, en það er óþarfi að rakka niður verð eins og Þórður A og fleiri gera án þess að vera búinn að skoða eintökin sem að boðin eru til sölu, við erum alltaf föst í því t.d. w124 árg 88 er max 300 þús :shock:

Maður getur fundið gullmola hér og þar og það eru til safnarar út um allt !

Ég veit um einn w126 sem að var fluttur inn fyrir HRUN á 2 milljónir ( € 93 ) og w126 Coupe sem að var fluttur inn fyrir 2 milljónir + líka fyrir hrun !

Númer eitt tvö og þrjú finnst mér að menn eigi að sýna sanngirni í sínum umræðum og ekki skemma söluþræði með því að setja út á verð ( þess vegna var hinum þræðinum læst ).
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#15
arnilst skrifaði: Er ekki eðlilegt að bílaáhugamenn ræði um verðlagningu á jafn merkum bíl á W124 er?
Ég spái í verð á ýmsum bílum dags daglega til að fylgjast með markaðnum, án þess að ég sé endilega að spá í kaup á viðkomandi bíl....
Sæll Árni,
ég get ekki séð betur en að við séum að ræða verðlagninguna og þráðurinn sé opinn til þess :shock:
Sjálfur fagna ég því að menn skuli vilja ræða verð á bílum en persónulega er ég á móti því að það sé gert í söluþráðum þó svo að það sé ekkert sem banni það.
Menn geta hins vegar óskað eftir því að lokað sé fyrir innlegg sé farið fram á það og verðum við oftast við þeim beiðnum.
Það hafa farið hérna áður fram umræður um verðlagningu á bílum, sbr. nýverið var umræða um ákveðinn W211 E55 AMG. Ekki var lokað fyrir þá umræðu :roll:
arnilst skrifaði: En þið megið endilega loka þessum þræði bara ef hann fer eitthvað í taugarnar á einhverjum.... Tilgangurinn var kannski að starta einhverri umræðu hvort góð eintök af gömlum merkilegum bílum séu að hoppa í verði, því ekki veitir af því að fríska upp á þetta leiðinlega spjallborð. Benz á skilið einhvern flottan vettvang einsog bmwkraftur.is
Engin ástæða til þess að loka þessum þræði, ef menn fara að settum reglum varðandi innlegg er engin ástæða til þess.

Leitt að þér þyki þetta spjallborð leiðinlegt en það verður jú aldrei betra en þau innlegg sem menn setja inn og ef enginn setur innlegg þá verður það sjálfkrafa dautt.

Varðandi BMWkraftinn þá er það ágætis spjallborð sem ég t.d. kíki reglulega inn á (er með nikkið Benz :wink: ).
Sumar umræður þar gætu aldrei farið fram hérna af því, öfugt við BMWkraftinn, erum við hluti af Mercedes-Benz Clubs International og fáum ýmsa þjónustu þaðan, þ.m.t. leyfi til þess að nota vörumerki Mercedes-Benz. Með vörumerkjum fylgja ákveðnar kvaðir. Það leiðir af sér að ýmislegt sem birtist á Kraftinum getum við ekki leyft hérna.
Svo einfalt er það.

Þetta þýðir þó ekki að umræðuspjallið geti ekki verði virkt og skemmtilegt.
Haltu bara áfram að pósta inn og sjáum hvað gerist í framhaldi af því :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#16
arnilst skrifaði:En þið megið endilega loka þessum þræði bara ef hann fer eitthvað í taugarnar á einhverjum.... Tilgangurinn var kannski að starta einhverri umræðu hvort góð eintök af gömlum merkilegum bílum séu að hoppa í verði, því ekki veitir af því að fríska upp á þetta leiðinlega spjallborð. Benz á skilið einhvern flottan vettvang einsog bmwkraftur.is
Og þér finnst semsagt inlegg á þessum nótum fríska upp á þetta annars leiðinlega spjall og gera það að flottum vettvangi fyrir Benz? Umræður hér eru ekkert annað en innlegg frá notendum, þar með talið þér. Innlegg mitt varðaði það hvernig ég lít á málið, og ef allir eru sammála þér á örðu spjalli þá skil ég vel að þú sért ánægður þar. Annars veit ekkii betur en að ég hafi akkúrat tekið þátt í þeirri umræðu sem þú varst upphafsmaður að og sagt mína skoðun á málinu, eins og þú værst væntanleg að biðja um. Eða hvað?
Sveinn

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#17
Mér finnst nú alveg ótrúlega ósanngjarnt að gamlir bílar "séu að hækka í verði" útaf gengi krónunnar. Hvaða endalausa vitleysa er það.



Ég var t.d búinn að semja um kaup á boddýhlutum í w116 fyrir rúmu ári. Best að taka það fram að hlutirnir eru allir hér á landi ásamt eigandanum. Eitthvað gekk nú eiganda hlutanna erfiðlega að finna þá og tafðist þetta því mjög. Svo finnast loks hlutirnir og ég get keypt þá. En hitt er annað mál að pakkinn sem átti að fara á 50.000 kr var allt í einu búinn að hækka uppí 100.000 kr vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. Ég spurði hvort hann væri að tala um gengið, og hann sagði já. Svo spurði ég hvort að það væri mikil eftirspurn eftir w116 boddýhlutum í dag, en þá kom nú hik á þennan ágæta mann.

Mér finnst þetta litla dæmi mitt lýsa bílamarkaðnum í dag.


Það sem ég er að segja að verð á bílum á að fara eftir framboði og eftirspurn frekar en gengi. Mér er alveg sama hvað kostar að flytja inn 230 e '91 miðað við að kaupa svoleiðis bíl hér á klakanum. Þess vegna glotti ég nú aðeins af dæminu hans Þórðar með ruslagáminn, því ég skildi nú hvað drengurinn meinti með því ;)



En svo er best að taka það fram að ég samdi um kaup á þessum boddyhlutum uppá nýtt og allir sáttir svona miðað við allt. Og ég er alls ekki að skíta neitt í þann mann, fannst þetta bara nokkuð skondin hækkun ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#18
aldrei myndi ég eyða peningum í svona ljótann bíll.. hver kaupir svona bíl nýan í þessum litum? Mér finndist verðið réttlætanlegra ef það væri einhver búnaður í þessum bíl.. er ekki einusinni með leðri. Þetta er hrá típa í ljótum litum, mitt mat allavega :roll:
Range Rover Vogue Dísel '03
M.Benz E55 AMG '98
Skidoo Summit 800 154" '08

Jóhann S: 660-1605

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#19
og hvað verðið varðar þá seldi ég tvo svona bíla fyrir tveimur árum báða 4matic, annan í góðu lagi með svörtu leður og lúgu, skoðaðann lítilega ryðgaðann og hann fór á 150kall eftir þónokkurn tíma á sölu og hinn var óryðgaður og leit mjög vel út(blár á litinn og svartur að innan) og sá bíll var í mjög góðu standi og ég fékk fyrir hann á endanum 210þ. báðir eknir um 250þ. svo ég skal taka í hendina á manninum ef hann fær þetta fyrir bifreiðina :roll:
Range Rover Vogue Dísel '03
M.Benz E55 AMG '98
Skidoo Summit 800 154" '08

Jóhann S: 660-1605

Re: W124 að hækka mikið í verði?

#20
JóiVidd skrifaði:aldrei myndi ég eyða peningum í svona ljótann bíll.. hver kaupir svona bíl nýan í þessum litum? Mér finndist verðið réttlætanlegra ef það væri einhver búnaður í þessum bíl.. er ekki einusinni með leðri. Þetta er hrá típa í ljótum litum, mitt mat allavega :roll:
velúr eins og er á þessum var dýrara og fínna en leður á þessum tíma
Finnbogi Ágústsson
W201 M103 3.0 BSK Elskan
W109 M116 3.5 SSK Viðhaldið