#52
Killerboot skrifaði:Er þetta ScratchX ekki bara fínn massi?
Jú í raun en samt sem áður að þá er þetta ekki að gerast í fyrsta skipti, gerist í hvert einasta skipti sem ég bóna bílinn.
Atli Þór

Enginn Benz

Kíktu í golf - http://www.geysirgolf.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#53
geysir skrifaði:
Killerboot skrifaði:Er þetta ScratchX ekki bara fínn massi?
Jú í raun en samt sem áður að þá er þetta ekki að gerast í fyrsta skipti, gerist í hvert einasta skipti sem ég bóna bílinn.
Merkilegt nokk! :?

Annars er Sealer & Glaze frá Mothers líklega eitt al besta smárispuviðgerðarefni sem völ er á! Mæli með því.
Tjörvi Valsson

190E crew

W201 190E 2.0 1992
W123 250 2.5 1982 - seldur - rifinn

#55
geysir skrifaði:
Killerboot skrifaði:Er þetta ScratchX ekki bara fínn massi?
Jú í raun en samt sem áður að þá er þetta ekki að gerast í fyrsta skipti, gerist í hvert einasta skipti sem ég bóna bílinn.
Þetta er merki um að yfirborð lakksins er að byrja að mattast og þú ert ekki að vinna þig niður úr því heldur bara að setja bón ofan á möttunina og þannig næst upp svolítill gljái. Þegar lakk mattast myndast á yfirborði þess einskonar dauðar flögur (agnarlitlar), það er að segja að á yfirborðinu myndast filma sem í raun er ekki lengur með fasta bindingu við bílinn. Þegar svona litur kemur í tusskuna ert þú að hreinsa þessa filmu að hluta til af og dauðu flögurnar sitja eftir í tusskunni. Flestir nudda sig ekki niður úr þessu, heldur setja bónið ofan á möttu filmuna og uppskera mjög skrítin glans á bílinn, sem flestir virðast að vísu mjög ánægðir með og sjá ekkert skrítið við bílinn sinn. Vandamálið er síðan alltaf til staðar og lakkið heldur áfram að mattast. Þegar notuð eru bón sem innihalda vax er sífellt verið að vinna í þessu yfirborði því að nýtt bón sem borið er á bílinn vinnur sig niður úr gömlu bónhúðinni að hluta og því kemur ávallt svona litur í tusskuna.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)