....og hvað er meira viðeigandi en að stofna til umræðu um bónvörur
Sjálfur er ég að notast mest við Sonax Hardwax. Kosturinn við það er hversu rosalega vel það hreinsar burt tjöru. Auðveldast í heimi að vinna það, sérstaklega ef maður kaupir spreybrúsana. Þetta bón er flott vetrarbón og svo inn á milli á sumrin.
[img]http://bilxperten.dk/data/imgProductsWe ... 100510.jpg[/img]
Sonax Exstream hef ég líka notað og get ekki annað en mælt með því. Ágætt að vinna það.
[img]http://www.sonax.com.au/images/extremeSeries.jpg[/img]
Svo hef ég verið að prufa Auto Glym, super resin polish.
[img]http://www.wilkinsonplus.com/content/eb ... 1621_m.jpg[/img]
Strax á eftir því á maður að setja extra gloss protection.
[img]http://kirkhamcarparts.co.uk/autoglym/AGEGP.jpg[/img]
Seinna bónið á þá að auka endinguna eins og nafnið segir jú til um. Bíllinn glansar ekkert meira eftir það
Í Auto Glym vörunum hef ég líka prufað leather care, sem virkar ágætlega. Og svo car glass polish sem er vægast sagt ömurlegt að vinna. Þykk drulla sem endar í hvítu ryki sem dreifist yfir nýþrifinn bílinn.
En besta bón sem ég hef notað ef við ætlum að tala um endingu er gamla góða Mjallarbónið. Vægast sagt ömurlegt að vinna það, tekur marga klukkutíma, en fjandinn hafi það þetta virkar í marga mánuði !!!
En annað sem mig vanntar aðstoð með að finna. Efni á svarta stuðara og lista !! ??
Núna síðast prufaði ég Sonax Vínilgljáa, sem ég nota nú yfirleitt á mælaborð. En aftaná brúsanum segir að efnið hennti vel á stuðara og lista. En nú er malarvegur heim til mín og guð minn almáttugur hvað rykið límist við þetta. Stuðarar og listar eru núna alveg brúnir !! Hvað eruð þið að nota í þeirri deld ???