#32
Mér finnst þetta nú bara mjög fínar reglur. Ég skil alveg að það geti verið vesen að finna sér stað til að hvíla sig á úti á landi en það hlýtur að vera hægt að finna stað á 4,5 klukkutíma fresti. Á meðan þjóðvegirnir eru eins og þeir eru þá er þetta bara nauðsynlegt til að forðast slys.
Thrullerinn skrifaði:Bensín er orðið dýrt allstaðar, það er lítið sem
hægt að gera í því.
Jájá auðvitað er lítið hægt að gera í því, en eins og ég skil þetta þá eru bensíngjöldin sem ríkið leggur á hvern lítra hlutfallslega háð bensínverði og hækka þannig með verðinu, sem þýðir að ef heimsmarkaðsverð tvöfaldast á ákveðnu tímabili þá tvöfaldast peningurinn sem við borgum ríkinu þegar við kaupum bensín.

Eins og ég skil þetta þá erum við að borga þetta álag til þess að borga fyrir vegaframkvæmdir svo að fólkið sem er ekki á bíl sé ekki látið borga fyrir vegina sem við erum að nota en ekki þeir.

Málið er bara... hafa útgjöld vegagerðarinnar verið að aukast í hlutfalli við þær auknu tekjur sem ríkið hefur í formi bensíngjalda? ef ekki, væri þá ekki rökréttara að bensíngjöldin væru bara ákveðin tala á líterinn, sem hækkaði ekki í hlutfalli við bensínverð? gæti mögulega hækkað bara eftir þörfum vegagerðarinnar...

C180 '99 W202

#33
Júlli skrifaði:Mér finnst þetta nú bara mjög fínar reglur. Ég skil alveg að það geti verið vesen að finna sér stað til að hvíla sig á úti á landi en það hlýtur að vera hægt að finna stað á 4,5 klukkutíma fresti. Á meðan þjóðvegirnir eru eins og þeir eru þá er þetta bara nauðsynlegt til að forðast slys.

ef allur sá peningur sem ríkið fær í þessi gjöld færi í vegi væri búið að 2falda allar helstu vegi landsins......
Guðmundur Kristinn Guðmundsson

Mercedes Benz 300 ce-24v sportline 1993' (C124)

#34
Samkvæmt Vegagerðinni þá slítur einn fulllestaður vöruflutningabíll veginum jafnmikið og 30-40.000 fólksbílar. Finnst því ekki mikið að því að þeir þurfi að greiða fyrir hvern ekinn km.

Held að meðbyrinn sem trukkabílstjórarnir höfðu sé að minnka enda hafa aðgerðir þeirra einna helst bitnað á hinum almenna borgara.

Mín tilfinning er sú að margir þessara bílstjóra, sem langflestir eru á nýjum eða nýlegum trukkum, hafi orðið fyrir barðinu á gengislækkun krónunnar og að afborganir af lánum á trukkunum hafi hækkað gríðarlega. Auk þess er orðið minna að gera hjá þeim sökum lægðarinnar og því séu margir þeirra á vonarvöl þar sem ekki má mikið útaf bera til að hægt sé að greiða af lánunum og reka trukkana. Þess vegna hafi þeir farið út í þessar aðgerðir og reynt að fá ríkið til þess að minnka skattlagningu á eldsneyti. Þeir geta svo kennt ríkinu um ef þeir fara á hausinn.

Varðandi verð á eldsneyti hér á landi en einhver var að tala um að við værum með ódýrasta verðið vegna þess að krónan hefði fallið og þess vegna virkaði eldsneyti svo dýrt annarsstaðar. Þar sem krónan er orðin svona veik þá er náttúrulega ennþá dýrara fyrir olíufélögin að kaupa eldsneyti að utan og því erum við sannarlega með ódýrt eldsneyti m.v. gengi krónunnar.

Persónulega styð ég ekki aðgerðir trukkabílstjóranna og mér finnst að enginn eigi að komast upp með slíkt ofbeldi og þeir hafa verið að framkvæma með því að festa hinn almenna borgara í umferðarteppum trekk í trekk.

Auðvitað væri ég til í lægra bensínverð en ég held að það sé bara ekki raunhæft. Það væri mun eðlilegra að berjast gegn bifreiðagjöldum sem sett voru á bifreiðaeigendur sem bráðabirgðaúrræði á níunda áratugnum til þess að rétta af halla ríkissjóðs.
Siggi
Mercedes-Benz E500 ´03 8)

Mercedes-Benz makes cars, others only make vehicles

#35
Samkvæmt Vegagerðinni þá slítur einn fulllestaður vöruflutningabíll veginum jafnmikið og 30-40.000 fólksbílar.
þessu á ég bágt með að trúa segja þeir þetta virkilega.
W126 500se 85'
Ford Mustang GT 01'
Ford Econoline 79'
John Deere Model M 49'
John Deere Model M 50'
MF 135

Hjalti Þórhallsson

#36
Júlli skrifaði:Mér finnst þetta nú bara mjög fínar reglur. Ég skil alveg að það geti verið vesen að finna sér stað til að hvíla sig á úti á landi en það hlýtur að vera hægt að finna stað á 4,5 klukkutíma fresti. Á meðan þjóðvegirnir eru eins og þeir eru þá er þetta bara nauðsynlegt til að forðast slys.
Thrullerinn skrifaði:Bensín er orðið dýrt allstaðar, það er lítið sem
hægt að gera í því.
Jájá auðvitað er lítið hægt að gera í því, en eins og ég skil þetta þá eru bensíngjöldin sem ríkið leggur á hvern lítra hlutfallslega háð bensínverði og hækka þannig með verðinu, sem þýðir að ef heimsmarkaðsverð tvöfaldast á ákveðnu tímabili þá tvöfaldast peningurinn sem við borgum ríkinu þegar við kaupum bensín.
Eins og ég skil þetta þá erum við að borga þetta álag til þess að borga fyrir vegaframkvæmdir svo að fólkið sem er ekki á bíl sé ekki látið borga fyrir vegina sem við erum að nota en ekki þeir.

Málið er bara... hafa útgjöld vegagerðarinnar verið að aukast í hlutfalli við þær auknu tekjur sem ríkið hefur í formi bensíngjalda? ef ekki, væri þá ekki rökréttara að bensíngjöldin væru bara ákveðin tala á líterinn, sem hækkaði ekki í hlutfalli við bensínverð? gæti mögulega hækkað bara eftir þörfum vegagerðarinnar...
Þessu var breytt fyrir nokkrum árum í fasta krónutölu sem helst óbreytt hvað sem bensín hækkar. Þannig að það er ekki nema lækka virðisaukann á bensíni :?
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

#37
Hjalti skrifaði:
Samkvæmt Vegagerðinni þá slítur einn fulllestaður vöruflutningabíll veginum jafnmikið og 30-40.000 fólksbílar.
þessu á ég bágt með að trúa segja þeir þetta virkilega.
Þetta fer allt eftir öxulþunga.
Bíll með 10 tonna öxulþunga slítur veginum 160.000 sinnum meira en bíll með 500 kg öxulþunga.

Sami bíll með 10 tonna öxulþunga slítur veginum 31.605 sinnum meira en bíll með 750 kg öxulþunga.

Heimild: http://www.ioes.hi.is/news/neskaupsst2.ppt
Siggi
Mercedes-Benz E500 ´03 8)

Mercedes-Benz makes cars, others only make vehicles

#38
hjalti.g skrifaði:
Júlli skrifaði:Mér finnst þetta nú bara mjög fínar reglur. Ég skil alveg að það geti verið vesen að finna sér stað til að hvíla sig á úti á landi en það hlýtur að vera hægt að finna stað á 4,5 klukkutíma fresti. Á meðan þjóðvegirnir eru eins og þeir eru þá er þetta bara nauðsynlegt til að forðast slys.
Thrullerinn skrifaði:Bensín er orðið dýrt allstaðar, það er lítið sem
hægt að gera í því.
Jájá auðvitað er lítið hægt að gera í því, en eins og ég skil þetta þá eru bensíngjöldin sem ríkið leggur á hvern lítra hlutfallslega háð bensínverði og hækka þannig með verðinu, sem þýðir að ef heimsmarkaðsverð tvöfaldast á ákveðnu tímabili þá tvöfaldast peningurinn sem við borgum ríkinu þegar við kaupum bensín.
Eins og ég skil þetta þá erum við að borga þetta álag til þess að borga fyrir vegaframkvæmdir svo að fólkið sem er ekki á bíl sé ekki látið borga fyrir vegina sem við erum að nota en ekki þeir.

Málið er bara... hafa útgjöld vegagerðarinnar verið að aukast í hlutfalli við þær auknu tekjur sem ríkið hefur í formi bensíngjalda? ef ekki, væri þá ekki rökréttara að bensíngjöldin væru bara ákveðin tala á líterinn, sem hækkaði ekki í hlutfalli við bensínverð? gæti mögulega hækkað bara eftir þörfum vegagerðarinnar...
Þessu var breytt fyrir nokkrum árum í fasta krónutölu sem helst óbreytt hvað sem bensín hækkar. Þannig að það er ekki nema lækka virðisaukann á bensíni :?
Ah, það breytir ansi miklu... þá finnst mér nú eiginlega bara hálf asnalegt að vera að heimta að ríkið lækki bensíngjöld til að koma til móts við hækkandi bensínverð... hinsvegar má svosem mótmæla gjöldunum ef þau eru eins og einhver hérna vildi meina að skila ríkinu mikið hærri tekjum en sem nemur útgjöldum vegagerðarinnar, en þá skil ég ekki af hverju fólk mótmælir fyrst núna... veit einhver annars nákvæmlega hver útskýringin er á þessum bensíngjöldum? eru þau eins og ég held bara til að borga fyrir vegi sem bara bíleigendur nota eða er ég bara að rugla? einhver sem getur frætt mig?

Jæja, það virðist sem eina forsenda stuðnings míns við mótmæli vörubílstjóra sé farin, nú verð ég víst að vera á móti þessu :roll:
C180 '99 W202

#39
Júlli skrifaði:

Þetta og bifreiðagjöldin á að borga viðhald á vegum en ég hef alltaf haft efasemdir að allur þessi peningur fari í vegabætur. Held að þetta fari allt of mikið í svona skrýtin verkefni eins og Héðinsfjarðargöng en það kemur auðvitað báðum mönnunum :lol: sem keyra þar reglulega í gegn til góða :?
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

#40
Já úff það er ekkert nema eitthvað svona kjaftæði sem allur þessi peningur fer í, Árni Johnsen með einhverjar fáránlegar hugmyndir um einhver göng til vestmannaeyja og þá þarf auðvitað að þrefalda bensín- og bifreiðagjöld til að borga þessa milljarða svo nokkur hundruð manns þurfi ekki að eyða einhverjum klukkutíma og nokkrum þúsundköllum í að taka ferjuna yfir.

Það þykir auðvitað sjálfsagt að við bílaeigendur greiðum bara sjálfir fyrir vegaviðgerðir og séum ekki að draga aumingja bílalausa fólkið sem er nú svo umhverfisvænt og heilsusamlegt með okkur í þann gríðarlega kostnað, en þegar einhverja 3-4 íbúa í einhverju krummaskurði vantar 300 milljónir fyrir göngum svo þeir þurfi ekki að keyra í snjókomu greyin þá auðvitað eigum við bara að borga þetta fyrir þá, þeir borga jú heilar... hvað eigum við að segja... 50-100 þúsund krónur á ári í bifreiða- og bensíngjöld?

Auðvitað verður að hafa vegina úti á landi örugga og ef eina leiðin til að fólk keyri ekki útaf og drepi sig er að byggja rándýr göng þá er það bara gert, en af hverju bara sá partur af þjóðinni sem á bíl á að hjálpa þeim með þennan kostnað, þrátt fyrir að 90% landsmanna komi aldrei til með að keyra þessi göng... það skil ég ekki :roll:
C180 '99 W202