#12
fráBjörgvin B
Kærðu úrskurðinn, fyrst til Tollstjóra og svo til Ríkistollanefndar, þetta er 3. ára prógram með tilheyrandi lögfræðikostnaði.
"117. gr. Kærur til tollstjóra.
Telji tollskyldur aðili ákvörðun tollstjóra um gjaldskyldu, fjárhæð aðflutningsgjalda eða atriði sem liggja til grundvallar ákvörðun aðflutningsgjalda, svo sem tollverð og tollflokkun, eigi rétta getur hann sent skriflega rökstudda kæru, studda nauðsynlegum gögnum til tollstjóra. Ef ágreiningur er um tollmeðferð vöru sem hefur þegar verið tollafgreidd skal kæra send tollstjóra innan 60 daga frá tollafgreiðsludegi.
Telji tollstjóri óljóst á hvaða rökum kæra er reist eða að fylgiskjöl séu ófullnægjandi skal hann gefa kæranda kost á að bæta úr því innan hæfilegs tíma. Ef þess er eigi gætt varðar vanreifun frávísun kæru.
Úrskurða skal svo fjótt sem verða má og eigi síðar en innan 30 daga frá því að gagnaöflun er lokið. Úrskurður tollstjóra skal rökstuddur og tollskyldum aðila skal bent á heimild til þess að kæra úrskurðinn til ríkistollanefndar, sbr. 118. gr. Úrskurður skal sendur innflytjanda með sannanlegum hætti. Samrit úrskurðar skal þegar í stað sent tollstjóranum í Reykjavík.
118. gr. Kærur til ríkistollanefndar.
Tollskyldur aðili getur skotið úrskurði tollstjóra um endurákvörðun skv. 111.–113. gr., sbr. 114. gr., úrskurði tollstjóra um leiðréttingu skv. 116. gr., kæruúrskurði skv. 117. gr. og ákvörðun tollstjórans í Reykjavík skv. 21. gr. og 2. mgr. 145. gr. til ríkistollanefndar innan 60 daga frá póstlagningardegi úrskurðar eða ákvörðunar.
Tollstjórinn í Reykjavík getur skotið úrskurðum annarra tollstjóra um endurákvörðun skv. 111.–113. gr., sbr. 114. gr., úrskurðum þeirra um leiðréttingu skv. 116. gr. og kæruúrskurðum þeirra skv. 117. gr. til ríkistollanefndar innan sama frests og greindur er í 1. mgr.
Kærur skulu vera skriflegar og studdar nauðsynlegum gögnum. Vanreifun varðar frávísun. Berist nefndinni kæra og hún er rökstudd með tollskjölum, sem ekki hafa sætt efnisúrlausn hjá tollstjóra, getur nefndin sent kæruna til tollstjóra til uppkvaðningar úrskurðar að nýju. Nefndin skal tilkynna aðila um þá ákvörðun.
Tollstjórinn í Reykjavík skal koma fram gagnvart ríkistollanefnd fyrir hönd tollyfirvalda.
Nefndin skal tafarlaust senda tollstjóranum í Reykjavík endurrit eða ljósrit af kæru tollskylds aðila og þeim gögnum sem kunna að fylgja kæru hans. Hafi tollstjórinn í Reykjavík skotið úrskurði eða ákvörðun annars tollstjóra til nefndarinnar skv. 2. mgr. skal nefndin tafarlaust senda innflytjanda endurrit kæru ásamt gögnum sem henni fylgdu. Skal nefndin gefa aðilum kost á að koma fram með andsvör sín og gögn innan hæfilegs frests.
Telji nefndin mál ekki nægilega upplýst getur hún beint til málsaðila að afla frekari gagna eða upplýsinga málinu til skýringar.
Ríkistollanefnd er heimilt að kveðja sérfróða menn sér til aðstoðar við úrlausn ágreiningsmála og krefjast upplýsinga samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Nefndin getur ákveðið málflutning ef mál er flókið eða yfirgripsmikið og má hann vera munnlegur. Um málflutning skulu gilda almennar reglur um málflutning fyrir héraðsdómi, um vanhæfi, aðstoð sérfróðra manna o.fl. eftir því sem við á.
Nefndin skal úrskurða um kærur eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 60 dögum eftir að gagnaöflun er lokið. Sé munnlegur málflutningur viðhafður skal úrskurður kveðinn upp innan 60 daga frá lokum málflutnings. Úrskurðir nefndarinnar skulu rökstuddir.
Kæra til ríkistollanefndar frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar".