#2
Fluttu hann úr landi og seldu hann og sparkaðu síðan i rassgatið á tollgaurnum!


Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#4
Æ það eru alltaf eitthverjir þrjótar að reyna að svindla við innflutning á bílum og svo lendir heiðarlegt fólk sem ekkert er að reyna að svindla stundum í svona hremmingum...

Þegar ég flutti inn C43AMG bílinn minn átti að rengja svona reikninginn, en þeim tókst það ekki.. Málið var að ég keypti bílinn á e-bay, en nokkuð undirverði miðað við gangverð í USA þar sem bílinn datt á reserve verðinu sem var svona frekar í lægri kanntinum. Verðið var því töluvert undir því sem svona bílar kostuðu í Þýskalandi.. Það sem hinsvegar varð til þess að tollurinn gat ekki rengt reikninginn frá mér var að ég keypti bílinn í Dallas, en í því fylki eru lög sem segja að enginn geti haft eigendaskipti á bíl nema að lögfræðingur útbúi alla pappíra til þess og sjái um viðskiptin.. Ég var því með 350 dollara reikning frá eitthverri lögfræðistofu fyrir umsýslu bílaviðskiptanna og item-númerið af e-bay. Þetta varð til þess að þeim varð fulljóst að ekkert ómisjafnt var þarna á ferðinni, enda var ekkert verið að plotta neitt, heldur bara verið að framvísa réttum reikning.

Það sem er verst í þessu máli hjá þér er að það skuli standa á reikningnum hvað þessi viðgerð kostaði, en það á bara ekkert að koma málinu við... Bíll sem lendir í óhappi er líklega verðlítill ef hann er beglaður, en ef hann er lagaður er mögulegt að selja hann kanski fyrir næstum því fullt verð. Þessi viðgerð á bara alls ekkert að koma tollayfirvöldum hér á landi neitt við...
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#5
Lenti í þessu sama með W124 320 bílinn minn... Þá var hann skemmdur bæði að framan og á hliðunum og fékk hann lækkaðan töluvert vegna þess. En einhver tollari með spýtu í rassgatinu þurfti að rífast um þetta í örugglega 3 vikur áður en hann ákvað að leyfa mér að fá hann eins og hann orðaði það....

Vera harður við þessi helvíti...

Kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

#6
Ég verð nú bara að segja eins og er þá vorkenni ég nú þessum tollurum. Upp til hópa eru þetta mjög litlir menn inn í sér og vilja sýna mönnum hversu mikil "völd" þeir hafa með svona stælum. Tollembættið hér heima er eitt mesta brandaraembættið á öllu landinu og þótt víðar væri leitað.
Mercedes Benz E500 2003 08/02

Mercedes Benz 400E 1993

http://members.cardomain.com/lydur

#7
Þetta er auðvitað ekkert annað en óþolandi :!: :!:
Spurning um hvort þú ættir ekki bara að hafa samband við fjölmiðla vegna þessa?

Þekki einn sem lenti í vandamáli þegar hann flutti inn CLK fyrir nokkrum árum.
Hann lenti í miklu stappi við Tollinn en gaf sig ekki, eyddi heilum vinnudegi hjá tollinum og heimtaði að tala við yfirmenn þeirra sem voru að afgreiða hann þegar þeir sem hann ræddi við neituðu að trúa því sem hann sagði.
Þeir sögðu að bíllinn gæti ekki verið svona ódýr etc. þrátt fyrir að hann hefði alla löglega pappíra í höndunum. Eftir mikið þjark, þar sem hann gaf sig alls ekki, og háværar umræður, gafst tollurinn upp og afhentu honum bílinn.

Það sem okkur fannst svo merkilegast við þetta allt saman að þegar bíllinn fór í alþrif þá kom í ljós að fyrri eigandi í USA hafði augljóslega gleymt lítilli notaðri hasspípu í hólfi við aftursætin - nokkuð sem tollararnir höfðu alls ekki tekið eftir :? :roll:
Maður hélt nú að hundar væru látnir kemba alla notaða bíla sem koma inn... :shock:
Benedikt Hans Rúnarsson

#8
Netbílar,

Hefur þú verið mikið í innflutningi? er þetta kanski eitthvað persónulegt sem lyggur á bakvið þetta?

Eftir að lesa svör hinna hér inni þá er ég farinn að efast um að um persónulegt einelti sé að ræða.. :?
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is
cron