Hef nú skoðað þá nokkra en eini w210 bíllinn sem ég hef skoðað og fékk 10 hjá mér er bíllinn hans Ingvars, en hann er 320 1996, alveg rosalega flottur bíll og alveg óryðgaður. Ég gat ekki séð að hann hafi gengið undir claim meðferð.JBV skrifaði:'99 Benzinn sem ég var á gegst undir ryðendurbætur eins og sumir ykkar munið kanski eftir. Þær endurbætur heppnuðust mjög vel og var bíllinn eins og nýr á eftir. Ekki er gott að segja hvaða árgerð af w210 bíll sé skárstur á boddýi gagnvart ryði. Það eina sem hægt er að ráðleggja væntanlegum kaupendum af w210 Benz er að skoða boddýið vel eins og hér að ofan er lýst. Til að ganga úr skugga um að bíllinn sé ryðlaus eða allt að því. Því inn á milli reynast eintök sem hafa svo til sloppið við að ryðga. Ekki er verra ef liggur fyrir staðfesting um að bíllinn hafi undirgengist ,,claim" þ.e. endurnýjun boddý hluta og málun.
Eitt sem menn gleyma er að þessir bílar sem gangast undir þetta claim, það er jú skipt um lausu boddy stykkinn, en afturbretti, sílsar og allt boddyið á bílnum er ennþá ónýta stálið sem er bara búið að ryðhreinsa og mála aftur.