Ég er núna að íhuga að láta gamlan draum rætast að hluta til og fjárfesta í E-class.
Fjármálin leyfa kannski ekki það besta í augnablikinu en ég hef verið að sjá nokkra á sölum sem eru á ~1millu. Ýmist gamla leigubíla sem standa í 4-700þ km eða minna ekna bensínbíla.
Þar sem leður er skilyrði eru varla neinir að velja úr. Mig langar helst í hvítan, svartan eða annan dökkan lit en ég hef bara séð einn sem kemur til greina og sá er silfurlitaður '96 E230 classic, ekinn ~190þ á rúma millu. Læt fylgja mynd af honum
En nóg um það, ástæðan fyrir að ég er að pósta hérna um W210 bílana er að ég er byrjandi í Benz heiminum og gæti vel þegið góð ráð.
Getiði eitthvað sagt mér um áreiðanleika þessara bíla svona almennt, er eitthvað sérstakt að hrjá þá, ætti ég að skella mér á einn eða hvað?
Ég veit að það fer allt eftir ástandi bílsins, en er hægt að segja mér eitthvað út frá þessari tegund, árgerð og akstri?
Eru bensínbílarnir að endast vel?
Að sjálfsögðu myndi ég láta skoða bílinn vel fyrir kaup en ætti ég að fara á venjulega skoðunarstöð eða er hægt að láta benz sérfræðinga ástandsskoða ?
Með von um góð viðbrögð og svör
ps. hef verið að sjá marga flotta E420 í þyskalandi á ~500þ kr, væri kannski sterkari leikur að flytja inn sjálfur betri bíl og enda á svipaðri upphæð og ég er að hugsa um?
E230 bíllinn:
[img]http://barnaland.is/album/img/15002/200 ... 4526_0.jpg[/img]